Fréttir
Línurit úr ratsjá Veðurstofunnar.

Snjóflóð úr Skollahvilft

21.3.2013

Að morgni 20. mars barst tilkynning frá Vegagerðinni um að snjóflóð hefði fallið úr Skollahvilft við Flateyri yfir veginn skammt austan eyrarinnar. Starfsmaður Vegagerðarinnar var á ferðinni klukkan 4:55 og sá þá flóð á veginum sem hann taldi að væri mjög nýlegt. Flóðið var um 30-40 m breitt en fremur þunnt og var hægt að keyra í gegnum það.

Þegar gögn úr Doppler radar Veðurstofunnar voru könnuð kom í ljós að flóð hafði mælst kl. 04:44 um morguninn (sjá stækkað línurit).  Radarinn mældi annað flóð kl. 07:20 en það náði ekki niður á veg og ummerki um það sjást ekki frá byggðinni.

Radarinn sýnir fyrst kóf sem ferðast á allt að 50-60 m hraða á sekúndu (um 200 km/klst) niður hlíðina. Á eftir því kemur snjóflóðið sjálft á 15-20 m hraða á sekúndu (um 60 km/klst). Það er fremur lítill hraði af snjóflóði að vera. Kófhlaupið stóð aðeins í nokkrar sekúndur við radarinn en snjóflóðið mældist í tæpa mínútu.

Telja má líklegt að snjóflóðið hafi fallið á varnargarðinn og runnið meðfram honum. Síðan varnargarðarnir ofan Flateyrar voru reistir 1998 hafa lent á þeim 6 snjóflóð og beindu garðarnir þeim öllum frá byggðinni án þess að tjón hlytist af. Ekkert þessara flóða var eins stórt og hamfaraflóðið sem féll í október 1995 og kostaði 20 mannslíf.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica