Um vefinn

Um vefinn

Um hlutverk ytri vefs Veðurstofu Íslands

Ytri vefur Veðurstofu Íslands, vedur.is, miðlar rauntímaupplýsingum, viðvörunum, tilkynningum, gögnum, skýrslum, rannsóknarefni, fréttum, fróðleik og kynningarefni er varðar viðfangsefni stofnunarinnar. Ýmis rannsóknar- og samstarfsverkefni hafa sína eigin undirvefi.

Um öryggishlutverk vefsins

Veðurstofan hefur meðal annars það hlutverk að vera í beinu samstarfi við Almannavarnir Ríkislögreglustjóra vegna náttúruvár, hættuástands og áhættumats í þeim tilgangi að bæta öryggi almennings og eigna. Þessar áherslur er að finna í lögum um stofnunina.

Á vefnum vedur.is eru birtar viðvaranir og upplýsingum miðlað um náttúruvá á hættustund, en það er mikilvægur þáttur í þjónustu stofnunarinnar. Notkun almennings og fagaðila á vefnum eykst sífellt og fólk reiðir sig á að þar séu bestu fáanlegar upplýsingar um hættuástandið hverju sinni.

Það er markmið Veðurstofu Íslands að vefurinn gegni ávallt hlutverki sínu, einnig á miklum álagstímum.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica