Gæðastefna

Gæðastefna Veðurstofu Íslands

Veðurstofa Íslands hefur að leiðarljósi að uppfylla kröfur, óskir og væntingar allra viðskiptavina sinna í samræmi við tilgang stofnunarinnar.

Gæðastefna Veðurstofunnar nær til allra þátta í starfsemi hennar. Hún miðar annars vegar að því að uppfylla samning við umhverfisráðuneytið um árangur stofnunarinnar og hins vegar að unnið sé í samræmi við alþjóðlega staðla og reglur, þ.m.t. gæðastjórnunarkerfi eins og ISO 9001.

Stofnunin leggur áherslu á eftirtalin gæðaviðmið:

  • Að fylgjast með og mæla reglulega ánægju viðskiptavina með þjónustu stofnunarinnar.
  • Að standa við skuldbindingar varðandi gæði þjónustu, áreiðanleika og veitingu hennar á tilsettum tíma.
  • Að tryggja hæfni, getu og þekkingu starfsmanna til að sinna verkefnum sínum á fullnægjandi hátt.
  • Að allur nauðsynlegur búnaður, sem þarf til að reka stofnunina, s.s. mælitæki, tölvubúnaður, upplýsingakerfi, aðbúnaður starfsmanna o.fl., uppfylli skilgreindar þarfir, gæðakröfur og gæðastaðla.
  • Að rekstur stofnunarinnar sé eins hagkvæmur og unnt er og í samræmi við fjárheimildir og aðrar tekjur á hverjum tíma.
  • Að vinna stöðugt að framförum, nýjungum og hagkvæmni í rekstri.
  • Að tryggja góðan árangur með beitingu faglegrar verkefnastjórnunar.
  • Að reka virkt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 og vinna að stöðugum umbótum á því.


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica