Notkunarskilmálar

Skilmálar vegna notkunar gagna á vefsíðum og gagnaþjónum Veðurstofu Íslands

Eftirfarandi skilmálar eru í gildi:

  1. Gögn og ljósmyndir sem birt eru á vefsíðum og gagnaþjónum Veðurstofunnar eru til frjálsra afnota nema annað sé tekið fram, enda sé uppruna gagna getið (hvaðan og hvenær gögnum var hlaðið niður). ef þau eru birt eða notuð af öðrum til útgáfu, framsetningar eða annarrar þróunar. Þetta á einnig við um myndræna framsetningu ofangreindra gagna. Afnotaréttur gagna er ekki takmarkaður, hvorki til einkanota né í viðskiptalegum tilgangi, nema þess sé sérstaklega getið.

  2. Með gögnum er átt við spár, mælingar/athuganir, niðurstöður líkanreikninga og afleidd gögn (útreiknuð gögn byggð á mælingum/athugunum eða líkanreikningum). Margar vefsíður innihalda rauntímagögn sem ekki hafa verið yfirfarin og geta þau því breyst án fyrirvara. Veðurstofa Íslands ábyrgist ekki að þau gögn sem finna má á vefsíðum hennar séu ætíð aðgengileg og uppfærð og áskilur sér rétt til að loka aðgangi að gögnum án fyrirvara. Viðskiptavini er kunnugt um að gæði gagnanna eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað varðar nákvæmni og áreiðanleika. Veðurstofa Íslands ber enga ábyrgð á því hvort gögn á gagnasvæði stofnunarinnar henta til þeirra nota sem viðskiptavinur ætlast til.

  3. Greinargerðir eða skýrslur innihalda oft sérstakar upplýsingar um það hvernig vitna skuli til gagna sem veittur er aðgangur að. Sé ekki annað tekið fram fellur ritað mál undir ákvæði höfundarréttarlaga (nr. 73/1972, með síðari breytingum). Ekki er heimilt að breyta efnisinnihaldi greinargerða og skýrslna sem aðgengilegar eru á vef stofnunarinnar. Einnig er óheimilt að breyta gögnum eða öðrum upplýsingum nema skýrt komi fram hvað sé frá Veðurstofunni komið og hvað sé á ábyrgð annarra.

  4. Veðurstofa Íslands safnar ekki persónuupplýsingum um notendur vefsíðna stofnunarinnar. Hins vegar eru upplýsingar um hug- og vélbúnað notenda www.vedur.is skráðar í dagbókarfærslur vefþjóns Veðurstofunnar.

  5. Veðurstofa Íslands ber ekki ábyrgð á neinum villum eða vanskráningu upplýsinga á vefsíðum eða gagnaþjónum og skal ekki vera ábyrg fyrir neinu tapi, meiðslum eða skaða sem hlýst af notkun þeirra. Veðurstofa Íslands ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum.   Veðurstofa Íslands er undanskilin fyrirsvari, ábyrgð, skyldum og skaðabótum í tengslum við upplýsingarnar að því marki sem lög leyfa.

  6. Með notkun á vefsíðum Veðurstofunnar samþykkir notandi ofangreinda skilmála.
  7. Öllum er frjálst að vista hjá sér þær ljósmyndir sem birtast á vefnum (þær eru í lágri upplausn) en Veðurstofan sinnir ekki beiðnum um myndir í meiri upplausn.

Um skilmála þessa vísast frekar í núgildandi lög um veðurþjónustu (nr. 142/2004) og reglugerð um Veðurstofu Íslands (nr. 367/1996). Nánari upplýsingar má fá hjá vefritstjóra.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica