Fréttir
ORF5
Greinileg merki eru um þenslu í Öræfajökli. (Smelltu til að stækka.)

Yfirlit vegna Öræfajökuls

Virkni Öræfajökuls nú er dæmigerð fyrir eldfjöll sem búa sig undir eldgos

26.10.2018

Að loknum samráðsfundum með Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og Almannavörnum, auk íbúafunda í Öræfasveit hefur verið tekin saman núverandi staða Öræfajökuls.

Núverandi staða Öræfajökuls

  • Fjallið hefur þanist út frá áramótum 2016-17.  Þenslunni fylgir aukin jarðskjálftavirkni og aflögun, sem kemur fram í úrvinnslu  gervitunglagagna og GPS mælinga. Orsök þenslunnar er talin vera innskot nýrrar kviku í rótum eldstöðvarinnar sem byggir  upp þrýsting inni í fjallinu.
  • Engin merki eru um að hraði þenslunnar fari minnkandi, þvert á móti er vísbendingar um að hraði þenslunnar, sem líklega endurspeglar hraða innflæðis kviku, hafi aukist lítillega frá því í sumar.
  • Jarðskjálftavirknin í ár hefur aldrei verið meiri síðan mælingar hófust og hefur heldur aukist frá því í sumar. Bæði mælast nú fleiri skjálftar en einnig eru þeir stærri og þar með orkumeiri. M.ö.o. þá mælast nú í haust fleiri skjálftar af stærð M1,5 til M3 en áður. Jarðskjálftarnir raða sér helst á öskjurimann og benda því til hreyfinga á hringsprungum á jaðri öskjunnar.
  • Svo virðist sem dregið hafi verulega úr afli jarðhitasvæðisins sem myndaði um 20 m djúpan sigketil í miðri Öræfajökulsöskjunni í nóvember í fyrra. Gervitunglamynd af yfirborði jökulsins frá 4. október sýnir óverulegar breytingar, aðrar en þær sem tengja má eðlilegu árferði. Mælingar í Kvíá, bæði leiðnimælingar og efnagreiningar á sýnum, benda til að í ár hafi dregið smám saman úr magni jarðhitavatns sem blandast jökulvatninu. Mælingar á dýpt ketilsins sýna að hann náði mestri dýpt í desember í fyrra og hefur síðan grynnkað (um a.m.k. 10 metra). Íssjármæling sem gerð var í júní 2018 sýnir enga vatnssöfnun undir katlinum. Það er því afar ólíklegt að ísketillinn safni vatni. Ný mæling á dýpt ketilsins verður gerð í nóvember.
  • Viðnámsmælingar frá því í vor sýna jarðhitaummyndun á litlu dýpi inni í öskju Öræfajökuls.  Mælingarnar benda til tilvistar háhitakerfis, svipaðs og sést í mörgum megineldstöðvum á Íslandi. 
  • Efnagreining á sýnum úr Kotá benda til að hún sé blönduð jarðhitavatni líkt og verið hefur. Svínafellsá sýnir engin jarðhitamerki og Virkisá sýnir svipað ástand og verið hefur.

Samtúlkun ofantalinna mælinga á stöðunni í dag bendir til að kvikusöfnun sé á um 3 til 8 km dýpi. Hún byggir upp þrýsting inni í fjallinu og veldur þenslu og jarðskjálftavirkni á hringlaga öskjusprungum. Jarðhitaafl undir sigkatlinum hefur minnkað verulega. Hugsanlega varð hin snögga aukning í jarðhita í nóvember og desember 2017 vegna áhrifa kvikunnar á rætur jarðhitakerfisins en síðan hafi kerfið náð nýju jafnvægi við svipað hitaútstreymi og var áður. Jafnframt má vera að samfara auknu aðgengi kalds grunnvatns að efstu lögum fjallsins hafi efsti hluti jarðhitakerfisins kólnað.

Möguleg þróun    

  • Virkni Öræfajökuls nú er dæmigerð fyrir eldfjöll sem búa sig undir eldgos. Virknin getur hætt áður en til goss kemur en um það er ekkert hægt að segja á þessu stigi.
  • Ein möguleg afleiðing núverandi þróunar er að virknin vaxi enn og endi með eldgosi en ekki er hægt að segja hvenær það yrði.
  • Ekki er útilokað að fleiri kvikuinnskot myndist inní fjallinu. Þetta gæti haft áhrif á jarðhitavirkni og aukið hættu á jökulhlaupum.

Hér fyrir neðan má sjá frekari útskýringar á vöktun Öræfajökuls og einnig gröf og nánari útskýringar á virkninni í eldstöðinni.

ORF1

Kortið sýnir síritandi mælitæki sem notuð eru við sólarhringsvöktun Öræfajökuls á Veðurstofu Íslands. Mikil uppbygging hefur átt sér stað frá hausti 2017 en ólík mælitæki í grennd við eldstöðina hjálpa til við að túlka ástandið.

ORF2

Graf sem sýnir jarðskjálftavirkni frá því Veðurstofan hóf mælingar á svæðinu. Einungis eru teknir með skjálftar > M1,2 til þess að hægt sé að bera saman virkni milli tímabila, en mælakerfið sér alla skjálfta >~1,2 á svæðinu frá árinu 2005.

ORF3

Grafið sýnir uppsafnaða orkuútlausn skjálfta í Öræfajökli frá upphafi árs til dagsins í dag. Ljóst er að virkni hefur aukist í haust.

ORF4

Gröf til vinstri sýna tímaþróun mestu dýptar sigketilsins, sem uppgötvaðist 17. nóvember 2017. Flugmælilínur eru sýndar á kortinu til hægri með appelsínugulum lit. Ketillinn og afrennsli hans eru merkt með hvítum lit (Mynd: Jarðvísindastofnun Háskólans).

ORF5

Hér sjást greinileg merki um þenslu í Öræfajökli. Myndin er unnin úr gervitunglamyndum (InSAR tækni). Litirnir endurspegla þensluhraða, þ.e. mm færslu á ári (sjá skala t.v. á myndinni). Gervitunglið horfir úr suðaustri og vanmetur því aflögunina vestan við eldstöðina.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica