Fréttir
Skjalftar_myrdalsjokull
Kortið sýnir staðsetningu jarðskjálfta sem hafa orðið í Kötlusöskjunni í dag. Mynd úr Skjálftavefsjá Veðurstofu Íslands.

Virkni í Mýrdalsjökli

Hófst skömmu eftir miðnætti í nótt, 30. júní

30.6.2023

Uppfært kl: 18:00

Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli hefur haldið áfram í dag, en er þó minni m.v. síðustu nótt. Aðallega hafa smáskjálfar mælst í dag, en stærsti skjálftinn var 3,0 að stærð um kl. 15. Rafleiðni í Múlakvísl hefur haldið áfram að aukast jafnt og þétt í dag og jarðhitagas mælist við Láguhvola, sem bendir til þess að aukið hlutfall jarðhitavatns sé í ánni.

Áfram er fylgst mjög náið með Mýrdalsjökli og frekari upplýsingar verða gefnar út á vef Veðurstofunnar ef virknin breytist


Færsla sett inn kl: 11:40

Aukin skjálftavirkni hefur verið í Kötlu síðustu daga. Skömmu eftir miðnætti í nótt 30. júní  hófst hrina og klukkan 6:30 höfðu rúmlega 95 skjálftar mælst, 8 yfir 3 stig og sá stærsti 4.4. Jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli síðustu vikur er sú mesta síðan haustið 2016. Mælingar sýna aukningu í rafleiðni í Múlakvísl sem er nú óvenjuhá miðað við árstíma. Gasmælir á Láguhvolum sýnir aukningu í jarðhitagasi. Túlkun mælinga bendir frekar til jarðhitavirkni en ekki er hægt að útiloka kvikuhreyfingar.

Webcam_v089_Mulakvisl_ASA_20230630_0640

Hér er mynd síðan í morgun úr vefmyndavél við brúna yfir Múlakvísl á Þjóðvegi 1.

Líkur eru á vatnavöxtum í Múlakvísl vegna aukins hlutfalls jarðhitavatns í ánni. Gasmengun við ána getur fylgt jarðhitavatni. Um helgina má búast við hægri breytilegri átt á svæðinu og því getur gas safnast fyrir.  

Næstu daga má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli. Jarðskjálftar auka líkur á berg- og íshruni.

Fólki er ráðlagt frá að vera á ferli nærri upptökum Múlakvíslar og við Kötlujökul.   



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica