Fréttir
5-des-2023
Myndin er tekin á svölum Veðurstofu Íslands 5. desember 2023. Ljósmynd: Pála Hallgrímsdóttir/Veðurstofa Íslands.

Tíðarfar í nóvember 2023

Stutt yfirlit

5.12.2023

Nóvember var þurr um land allt og tíðarfar gott. Það var hlýtt á sunnanverðu landinu en kaldara norðanlands. Austlægar áttir voru ríkjandi í mánuðinum en það var tiltölulega hægviðrasamt.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í nóvember var 3,3 stig. Það er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -0,1 stig, 0,7 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 1,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 2,3 stig og 3,6 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2013-2022 °C
Reykjavík 3,3 1,1 21 153 0,4
Stykkishólmur 2,3 0,5 37 178 -0,2
Bolungarvík 2,0 0,7 35 126 -0,2
Grímsey 2,6 0,7 24 til 25 150 0,0
Akureyri -0,1 -0,7 69 143 -1,3
Egilsstaðir 0,5 -0,1 27 69 -0,7
Dalatangi 3,8 0,7 22 86 0,1
Teigarhorn 3,5 0,9 24 til 25 151 0,3
Höfn í Hornaf. 3,6


0,4
Stórhöfði 4,8 1,3 16 til 17 146 0,7
Hveravellir -3,1 0,5 17 59 -0,2
Árnes 1,9 1,1 21 til 22 144 0,7

Meðalhiti og vik (°C) í nóvember 2023

Það var tiltölulega hlýtt á sunanverðu landinu í nóvember en kaldara norðanlands. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 1,2 stig á Skarðsheiði en neikvætt hitavik var mest á Sauðárkróksflugvelli, -2,0 stig.


Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í nóvember miðað við síðustu tíu ár (2013 til 2022).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 5,8 stig. Lægstur var meðalhitinn við Sátu norðan Hofsjökuls, -4,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal -3,0 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 13,9 stig á Seyðisfirði þ. 21. Mest frost í mánuðinum mældist -17,0 stig í Möðrudal þ. 12.

Úrkoma

Nóvember var mjög þurr og úrkoma var vel undir meðallagi um allt land.

Úrkoma í Reykjavík mældist 44,7 mm sem er um 50% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoman 25,5 mm sem er um 40% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman í nóvember 31,5 mm og 40,7 mm á Höfn í Hornfirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 7, sex færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 7 daga sem er þremur færri en í meðalári.

Snjór

Í Reykjavík var jörð var alhvít einn morgun í nóvember, fjórum færri en að meðaltali áranna 1991 til 2020. Á Akureyri varð aldrei alhvítt í nóvember, sem er óvenjulegt, en tveir dagar mánaðarins voru skráðir flekkóttir. Að meðaltali eru 12 alhvítir dagar á Akureyri í nóvember.

Ísingaveður gerði á Austurlandi að kvöldi þ. 6. og aðfaranótt þ. 7. sem olli þónokkrum rafmagnstruflunum í landshlutanum.

Sólskinsstundafjöldi

Það var sólríkt bæði í Reykavík og á Akureyri í nóvember. Sólskinsstundirnar mældust 69,7 í Reykjavík sem er 30 stundum fleiri en að meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 27,6, sem er 12,4 stundum fleiri en að meðallagi áranna 1991 til 2020. Sólskinsstundirnar hafa sjaldan mælst fleiri á Akureyri í nóvembermánuði.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,7 m/s undir meðallagi. Austlægar áttir voru ríkjandi nánast allan mánuðinn. Hvassast var þ. 5. (norðaustanátt) og dagana 21. til 22. (suðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík var 1007,4 hPa sem er 6,4 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1036,9 hPa í Bolungarvík þ. 30. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist einnig í Bolungarvík, 969,3 hPa þ. 21.

Fyrstu ellefu mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu ellefu mánuði ársins mældist 5,6 stig sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,2 stigum undir meðaltali síðustu tíu ára. Meðalhiti mánaðanna ellefu raðast í 26. til 27. hlýjasta sæti á lista 153 ára. Á Akureyri mældist meðalhiti mánaðanna ellefu 4,8 stig, sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,3 stigum undir meðaltali síðustu tíu ára. Meðalhitinn á Akureyri raðast í 27. hlýjasta sæti á lista 143 ára.

Úrkoma í Reykjavík það sem af er ári hefur mælst 833,4 mm sem er um 10% umfram meðallag áranna 1991 til 2020. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 427,2 mm sem er um 85% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Haustið (október og nóvember)

Tíðarfar haustsins var gott. Það var hægviðrasamt og óvenjulega snjólétt. Meðalhiti á landsvísu var 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Það var tiltölulega hlýtt sunnanlands en kaldara fyrir norðan.

Meðalhiti haustmánaðanna tveggja í Reykjavík var 4,3 stig, en það er 0,8 stigum hlýrra en að meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,2 stigum yfir meðaltali síðustu tíu ára. Meðalhiti haustsins raðast í 17. til 19. hlýjasta sæti á lista 153 ára. Á Akureyri var meðalhiti haustsins 1,3 stig sem er 0,7 stigum undir meðallagi 1991 til 2020 en 1,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Haustmeðalhitinn á Akureyri raðast í 85. hlýjasta stæti á lista 143 ára.

Samanlögð úrkoma október og nóvembermánaða í Reykjavík mældist 170,0 mm sem er rétt yfir meðalhaustúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma haustsins 89,9 mm sem er um 65% af meðalhaustúrkomu áranna 1991 til 2020.

Það var 1 alhvítur dagur í Reykjavík þetta haustið, sem er fjórum færri en að meðaltali. Á Akureyri var enginn alhvítur dagur skráður í október og nóvember, en að meðaltali eru 16 alhvítir dagar þar í haustmánuðum tveimur.

Skjöl fyrir nóvember

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í nóvember 2023 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica