Fréttir
Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í maí miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).

Tíðarfar í maí 2024

Stutt yfirlit

5.6.2024

Maí var tiltölulega hlýr, sérstaklega á norðaustan- og austanverðu landinu. Þar var sólríkt og þurrt. Það var tiltölulega kaldara og úrkomusamara suðvestan- og vestanlands.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í maí var 6,9 stig. Það er 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 7,8 stig, 1,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 1,2 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 6,4 stig og 7,7 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2014-2023 °C
Reykjavík 6,9 0,2 48 til 50 154 0,1
Stykkishólmur 6,4 0,7 29 179 0,5
Bolungarvík 5,7 1,0 23 127 0,7
Grímsey 4,7 1,1 19 151 0,6
Akureyri 7,8 1,6 16 til 17  144 1,2
Egilsstaðir 7,6 2,1 4 til 5 70 1,8
Dalatangi 5,7 1,4 9 86 1,2
Teigarhorn 6,4 1,1 15 152 1,0
Höfn í Hornaf. 7,7


1,3
Stórhöfði 6,7 0,5 35 148 0,6
Hveravellir 2,0 0,4 18 til 19 60 0,6
Árnes 6,7 0,2 51 145 0,2

Meðalhiti og vik (°C) í maí 2024

Maí var tiltölulega hlýr og var hiti yfir meðallagi á langflestum veðurstöðvum. Að tiltölu var hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi en kaldara á Suðvestur- og Vesturlandi. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 2,4 stig á Gagnheiði. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -0,1 stig á Þingvöllum og Bláfeldi á sunnanverðu Snæfellsnesi.


Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í maí miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur við Skarðsfjöruvita, 8,5 stig. Lægstur var meðalhitinn á Þverfjalli, 0,2 stig. Á láglendi var meðalhitinn lægstur 3,8 stig á Fonti á Langanesi.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 21,5 stig á Mánárbakka og Húsavík þ. 25. Mest frost í mánuðinum mældist -10,2 stig á Setri þ. 1. Mest frost í byggð mældist -6,9 stig á Þingvöllum þ. 9.

Úrkoma

Maí var blautur á suðvestan- og vestanverðu landinu en þurr norðaustan- og austanlands.

Úrkoma í Reykjavík mældist 73,3 mm sem er 40% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoman 13,0 mm sem er um 55% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Það var óvenjulega úrkomusamt í Stykkishólmi í maí. Þar mældist úrkoman 112,5 mm sem er nærri þrefalt meira en í meðalári og þriðja mesta maíúrkoma sem mælst hefur í Stykkishólmi frá upphafi mælinga. Álíka mikil úrkoma mældist í maí 2018 (113,2 mm), en mest mældist hún í maí 1875 (132,0 mm). Í Stykkishólmi var sólarhringsúrkoman þ. 25. skráð 39 mm sem er það mesta sem mælst hefur þar á einum sólarhring í maímánuði. Óvenju mikil úrkoma mældist líka í Grundarfirði og Ólafsvík þennan sólarhring.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 16 sem er 6 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 4 daga sem er einum færri en í meðalári.

Snjór

Jörð var alauð alla morgna í maí í Reykjavík. Á Akureyri var flekkótt jörð fyrstu tvo daga mánaðarins, en aðra daga var hún auð.

Sólskinsstundafjöldi

Það var sérlega sólríkt á Akureyri í maí. Sólskinsstundirnar mældust 252,5, sem er 81,5 stundum fleiri en að meðaltali 1991 til 2020. Sólskinsstundirnar hafa aðeins þrisvar sinnum mælst fleiri á Akureyri í maímánuði, en það var árin 1968 (290,8), 2012 (287,4) og 1975 (259,4). Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 145,3 í maí, sem er 63,7 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur á landsvísu var undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Sunnanáttir voru ríkjandi í mánuðinum. Hvassast var þ. 24. (suðaustanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1010,4 hPa og er það 2,6 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1024,6 hPa á Kambanesi þ. 2. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 995,6 hPa á Gufuskálum þ. 20.

Fyrstu fimm mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu fimm mánuði ársins var 2,1 stig sem er 0,4 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti fyrstu fimm mánaða ársins raðast í 59. hlýjasta sæti á lista 154 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna fimm 0,8 stig sem er 0,7 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhitinn þar raðast í 64. hlýjasta sæti á lista 144 ára.

Heildarúrkoma í Reykjavík fyrstu fimm mánuði ársins mældist 294,3 mm sem er um 80% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðanna fimm 241,8 mm sem er 15% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Vorið (apríl og maí)

Meðalhiti vorsins var nálægt meðallagi áranna 1991 til 2020. Hann var 0,2 stigum undir í Reykjavík, 0,1 stigi undir á Akureyri, 0,1 stigi undir í Stykkishólmi og 0,1 stigi yfir á Egilsstöðum. Apríl var kaldur en maí hlýr og því endaði meðalhitinn mjög nálægt meðallagi.

Apríl var óvenju sólríkur og þurr suðvestanlands en blautari norðaustanlands. Í maí var aftur á móti óvenjusólríkt og tiltölulega þurrt á norðan- og austanverðu landinu en blautara á Suður- og Vesturlandi.

Í Reykjavík var heildarúrkoma vorsins um 85% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var heildarúrkoma vorsins um 20% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.  

Skjöl fyrir maí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í maí 2024 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica