Tíðarfar í ágúst 2020
Stutt yfirlit
Ágúst var fremur hlýr, sérstaklega á Norðausturlandi. Meðalhitinn í ágúst var víðast hvar hærri en meðalhiti júlímánaðar. Fyrri hluti mánaðarins var mjög úrkomusamur sunnan- og vestanlands. Á meðan var hlýtt á Norður- og Austurlandi. Mjög hlýtt var á Austurlandi um miðjan mánuðinn og mældist hitinn víða vel yfir 20 stig.
Hiti
Meðalhiti í Reykjavík í ágúst var 11,2 stig og er það 0,9 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en jafn meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 12,0 stig, 2,0 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 1,5 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 10,6 stig og 10,4 stig á Höfn í Hornafirði.
Meðalhita
og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.
stöð | meðalhiti °C | vik 1961-1990 °C | röð | af | vik 2010-2019 °C |
Reykjavík | 11,2 | 0,9 | 30 | 150 | 0,0 |
Stykkishólmur | 10,6 | 1,0 | 36 | 175 | 0,2 |
Bolungarvík | 10,2 | 1,5 | 23 | 123 | 0,7 |
Grímsey | 9,7 | 2,0 | 10 til 11 | 147 | 1,0 |
Akureyri | 12,0 | 2,0 | 12 | 140 | 1,5 |
Egilsstaðir | 11,2 | 1,6 | 9 | 66 | 1,4 |
Dalatangi | 9,4 | 1,1 | 22 | 83 | 0,3 |
Teigarhorn | 9,7 | 0,9 | 31 | 148 | 0,0 |
Höfn í Hornaf. | 10,4 | -0,2 | |||
Stórhöfði | 10,1 | 0,5 | 58 | 144 | -0,4 |
Hveravellir | 8,1 | 1,9 | 7 | 56 | 1,0 |
Árnes | 10,8 | 0,7 | 38 til 39 | 141 | -0,1 |
Meðalhiti og vik (°C) í ágúst 2020
Ágúst
var fremur hlýr. Á flestöllum stöðum var meðalhiti ágústmánaðar
hærri en meðalhitinn í júlí. Að tiltölu var hlýjast inn til
landsins á Norðausturlandi en að tiltölu kaldast við suður- og
vesturströndina. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár
var mest 2,3 stig við Upptyppinga. Neikvætt hitavik miðað við
síðustu tíu ár var mest -0,9 stig við Garðskagavita.
Hitavik sjálfvirkra stöðva í ágúst miðað við síðustu tíu ár (2010–2019).
Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Akureyri 12,0 stig en lægstur 5,7 stig á Þverfjalli. Á láglendi var meðalhitinn lægstur 8,6 stig í Seley.
Hæsti
hiti mánaðarins mældist 26,3 stig á Neskaupsstað þ. 13. og er
það jafnframt hæsti hiti ársins til þessa. Mjög hlýtt var á
Austurlandi um miðjan mánuðinn og mældist hitinn þar víða vel
yfir 20 stig. Mest frost í mánuðinum mældist -3,8 stig á
Grímsstöðum á Fjöllum þ. 20.
Úrkoma
Mjög úrkomusamt var á Suður- og Vesturlandi í byrjun mánaðar.
Úrkoma í Reykjavík mældist 93,0 mm sem er 50% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 32,9 mm sem er rétt undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 71,2 mm. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 204,8 mm sem er það mesta sem mælst hefur á því svæði í ágústmánuði síðan 2004, en þá mældist úrkoman í Akurnesi 233,3 mm.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 16, fjórum fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 6 daga sem er einum færri en í meðalári.
Sólskinsstundafjöldi
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 141,5 sem er 13,3 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 176,3 og og er það 41 stundum fleiri en í meðalári.
Vindur
Vindur á landsvísu var nærri meðallagi. Sunnanáttir voru ríkjandi dagana 5. til 16. ágúst.
Loftþrýstingur
Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1007,0 hPa og er það -1,6 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1021,7 hPa á Keflavíkurflugvelli og í Garðabæ-Urriðaholti þ. 27. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 977,3 hPa í Grindavík þ. 5.
Sumarið það sem af er (júní til ágúst)
Meðalhiti í Reykjavík var 10,7 stig sem er 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti sumarmánaðanna þriggja í Reykjavík er í 39. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 11,0 stig, 1,2 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en 0,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 21. sæti á lista 140 ára.
Úrkoma í Reykjavík mældist 187,3 mm sem er 14% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 99,3 mm sem og er það rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 4 fleiri en í meðalári í Reykjavík en 1 færri en í meðalári á Akureyri.
Sólskinsstundir
mældust 525,3 í Reykjavík, 38 fleiri en
að meðaltali 1961 til 1990 en 30 stundum færri en að meðaltali
síðustu tíu ár. Á
Akureyri mældust sólskinsstundirnar 586,5
sem er 116 stundum
yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990 og
120 stundum fleiri en
að jafnaði í sömu mánuðum síðustu tíu ára.
Fyrstu átta mánuðir ársins
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu átta mánuði ársins var 5,5 stig sem er 0,6 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 39. til 40. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna átta 5,1 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 22. sæti á lista 140 ára. Úrkoman hefur verið 18% umfram meðallag í Reykjavík, en 25% umfram meðallag á Akureyri.
Skjöl fyrir ágúst
Meðalhiti
á sjálfvirkum veðurstöðvum í ágúst 2020 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægtað sækja í sérstaka töflu.