Fréttir
Nytt-kort-17032024
Mynd sýnir spákort af úrkomutegund og -ákefð á landinu á sunnudag kl. 13.

Stórhríð á norðvesturhluta landsins

Snjóflóðaaðstæður víða um land

17.3.2024

Næstu daga verður vetrarlegt veður á landinu og mun víða snjóa með hvössum vindi og aukinni snjóflóðahættu.

Vestfirðir

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum. Á sunnudag mun bæta enn frekar í vind og ofankomu á Vestfjörðum. Spár gera ráð fyrir langvarandi stórhríð á svæðinu fram á þriðjudag með tilheyrandi uppsöfnun á snjó. Fyrir er dálítil lausamjöll ofan á eldri snjó. Búast má við miklum skafrenningi á svæðinu og aukinni snjóflóðahættu víða, m.a. á vegum. Til að byrja með verður sennilega meiri ofankoma á norðanverðum Vestfjörðum en á mánudag og þriðjudag má búast við snjókomu á sunnanverðum Vestfjörðum líka.

Norðurland

Á sunnudag verður hvöss NA-átt með talsverðri snjókomu. Fyrir er lausamjöll ofan á eldri snjó, en snjógryfjur af svæðinu sýna miðlungsveikt lag í eldri snjónum á 30-40 cm dýpi. Búast má við miklum skafrenningi á svæðinu með aukinni snjóflóðahættu, m.a. á vegum. Dregur úr vindi og úrkomu á mánudag.

Austurland

Á sunnudag snjóar í austlægri átt, en líklega rigna á láglendi. Vindur gæti farið yfir skafrenningsmörk á stöku stað um tíma. Fyrir er lagskiptur vindfleki til fjalla ofan á eldri snjó og sýnir snjógryfja að lítið álag þurfi til að skapa brot í snjóþekjunni. Á næstu dögum mun úrkoman koma í lotum yfir svæðið og líklega mun rigna upp í miðjar hlíðar á mánudag, sem gæti valdið votum spýjum.

Suðurland

Nýlegur snjór er víða á Suðurlandi. Næstu daga mun rigna með köflum víða á svæðinu og gætu vot snjóflóð eða krapaspýjur fallið í bröttum brekkum eða lækjarfarvegum.

Vesturland

Vesturhluti landsins fær sinn skerf af úrkomu líka og þá einna helst Snæfellsnesið og jafnvel Borgarfjörðurinn. Þar verður ANA stórhríð með mikilli snjókomu á sunnudag. Á mánudag verður úrkoma með köflum, líklega rigning upp í miðjar hlíðar.

Nytt-kort-17032024

Mynd sýnir spákort af úrkomutegund og -ákefð á landinu á sunnudag kl. 13.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica