Fréttir
Hildigunnur H. H. Thorsteinsson er nýr forstjóri Veðurstofu Íslands

Hildigunnur H. H. Thorsteinsson skipuð forstjóri Veðurstofu Íslands

Tekur við starfinu 1. júní

1.3.2024

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H.     Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára.

Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní nk.

Hildigunnur er með BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og lauk MSc gráðu í Technology and Policy frá Massachusetts Institute of Technology árið 2008.

Hildigunnur hefur starfað sem Chief Technical Officer hjá Innargi A/S í Kaupmannahöfn, frá 2022. Hún starfaði sem verkfræðingur hjá Enex Hf. í Reykjavík á árunum 2005-2006 og sem verkefnastjóri hjá Iceland America Energy Inc. í Los Angeles 2008-2009. Hildigunnur var tæknistjóri í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna í Washington árin 2009-2011 og síðar teymisstjóri á jarðvarmasviði í sama ráðuneyti 2011-2012. Árið 2013 tók Hildigunnur við stöðu framkvæmdastýru rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sinnti því starfi til ársins 2022.

Embætti forstjóra Veðurstofu Íslands var auglýst í nóvember sl.  og sóttu átta um embættið.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica