Fréttir
Kortið sýnir staðsetningu vatnshæðamæla Veðurstofunnar og rennslisleið hlaupvatns frá Skaftárkötlum.

Skaftárhlaupi að ljúka

Rennsli orðið svipað og fyrir hlaup

30.8.2024

Uppfært 30. ágúst kl. 13:15

  • Síðustu tvo daga hefur rennsli í Skaftá farið lækkandi
  • Vatnsmagn í ánni svipað og það var áður en hlaup hófst 20. ágúst
  • Ekki nema 12 mánuðir frá seinasta hlaupi - algengast að 2-3 ár séu á milli hlaupa frá Eystri-Skaftárkatli
  • Óvenju langt frá seinasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatlinum, sem hljóp siðast haustið 2021

Síðustu tvo daga hefur rennsli í Skaftá farið lækkandi og mælist um 100 m3/s við Sveinstind. Vatnsmagn í ánni er því að verða svipað og það var áður en hlaup hófst þann 20. ágúst og atburðinum því að ljúka.  

Í þessu hlaupi mældist rennsli í Skaftá við Sveinstind lengst af á milli 180 og 220 m3/s sem er mjög lágt rennsli fyrir hlaup úr Eystri Skaftárkatli. Það eru ekki nema 12 mánuðir frá seinasta hlaupi meðan að algengast er að það líði 2 til 3 ár á milli hlaupa frá Eystri-Skaftárkatli. Í síðasta hlaupi, haustið 2023 mældist mesta rennsli við Sveinstind tæplega 750 m3/s og er það þó mun minna en í stærstu hlaupum frá Eystri Skaftárkatli. Þau hlaup sem hafa komið þegar einungis eitt ár hefur liðið frá síðasta hlaup hafa verið áþekk þessu hlaupi með lágu hámarksrennsli en vörðu lengur.  

Þess ber að geta að óvenju langt er nú frá seinasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatlinum, sem hljóp síðast haustið 2021. Að meðaltali hafa verið um tvö ár á milli hlaupa þaðan. 

Linurit-skafta
Línuritið sýnir rennsli í Skaftá við Sveinstind (blátt) og í Eldvatni (rautt) frá 20. ágúst til dagsins í dag (30. ágúst).

Uppfært 28. ágúst kl. 15:40
  • Skaftárhlaup í rénum, rennsli í ánni hægt lækkandi við Sveinstind

  • Gervihnattamyndir benda til þess að hlaupið komi úr Eystri-Skaftárkatli en ekki þeim vestari eins og áður var talið líklegast

  • Óvenjulegt er að það hlaupi úr katlinum svo stuttu eftir hlaup en þó ekki óþekkt. Svipaðir atburðir eru þekktir bæði 1992 og 2003

  • Óvenju langt frá seinasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatlinum


Rennsli í Skaftá við Sveinstind er nú hægt lækkandi og mælist um 160 m3/s. Út frá breytingum á yfirborði Eystri-Skaftárketilsins, sem sjást af gervihnattamyndum, má ætla að hlaupi komi þaðan en ekki úr þeim vestari eins og áður var talið líklegast.  

Seinast hljóp úr Eystri-Skaftárkatlinum í ágúst 2023 og því ekki nema 12 mánuðir frá seinasta hlaupi meðan að algengast er að það líði 2 til 3 ár á milli hlaupa. Það er því óvenjulegt að það hlaupi úr katlinum svo stuttu eftir seinasta hlaup. Það er þó ekki óþekkt að hlaup komi með styttra millibili en 1992 og 2003 komu fram hlaup 13 og 14 mánuðum eftir seinustu hlaup þar á undan. Þau hlaup voru áþekk þessu hlaupi, þ.e. ekki með miklu hámarksrennsli en vörðu bæði í meira en tvær vikur.  

Rúmmál hlaupvatns sem þegar er komið fram við Sveinstind er um 50 Gl (50 milljónir rúmmetra). Ef söfnun hlaupvatns í lónið undir katlinum hefur verið með líkum hætti og á milli fyrri hlaup má ætla að 60 til 100 Gl gætu verið tiltækir. Það má því ætla að a.m.k. helmingur hlaupsins eða jafnvel meirihluti þess sé þegar kominn fram. 

Óvenju langt er nú frá seinasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatlinum. Það var því talið líklegast að þetta hlaup kæmi þaðan. Raunin er önnur og sýnir það þá óvissu sem oft er eðlislæg í túlkun náttúruváratburða.  



Uppfært 23. ágúst kl. 14:00
  • Lítilsháttar hækkun hefur verið í rennsli í Skaftá undanfarinn sólarhring og mælist nú 200m3/s við Sveinstind.
  • Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu
  • Ekki enn staðfest að hlaupið komi úr Vestari-Skaftárkatli.

Minniháttar breyting hafa verið í rennsli í Skaftá undanfarinn sólahring. Lítilsháttar hækkun varð seint í gær en rennslið hefur lækkað aftur síðan þá og mælist nú tæplega 200 m3/s við Sveinstind. Rennslið er sambærilegt við mikið sumarrennsli en í lægri kantinum miðað við hámarksrennsli síðustu Skaftárhlaupa. Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu, en áfram verður fylgst náið með þróun hlaupsins.

Ekki hefur enn verið staðfest hvort hlaupið eigi upptök sín í Vestari-Skaftárkatli en þekkt er að þaðan komi hlaup sem ekki ná miklu hámarksrennsli en vara lengi (1-2 vikur).

Fréttin verður næst uppfærð á mánudaginn 26. ágúst nema aðstæður breytist verulega.



Uppfært 22. ágúst kl. 11:00
  • Rennsli í Skaftá nokkuð stöðugt síðan í gær og mælist í kringum 180 m3/s við Sveinstind
  • Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu

  • Ekki enn staðfest að hlaupið komi úr Vestari-Skaftárkatli

Síðan í gær hefur rennsli í Skaftá verið nokkuð stöðugt og mælist það í kringum 180 m3/s við Sveinstind. Rennslið er sambærilegt við mikið sumarrennsli en í lægri kantinum miðað við hámarksrennsli síðustu Skaftárhlaupa. Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu, en áfram verður fylgst náið með þróun hlaupsins.

Ekki hefur enn verið staðfest hvort hlaupið eigi upptök sín í Vestari-Skaftárkatli en þekkt er að þaðan komi hlaup sem ekki ná miklu hámarksrennsli en vara lengi (1-2 vikur).

Frétt 21. ágúst kl. 12:00

  • Rennsli í Skaftá við Sveinstind heldur áfram að vaxa en hefur verið í hægum vexti það sem af er degi og mælist nú tæplega 180 m3/s 

  • Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu 

  • Um þrjú ár frá síðasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatli sem er óvenju langur tími milli hlaupa  

  • Töluverð óvissa um áframhald hlaupsins og mögulega stærð þess. 

  • Ekki enn staðfest að hlaupið komi úr Vestari-Skaftárkatli

Rennsli í Skaftá við Sveinstind hélt áfram að vaxa fram eftir gærkvöldi en hefur verið í hægum vexti það sem af er degi. Rennslið þar mælist nú tæplega 180 m3/s sem er sambærilegt við mikið sumarrennsli en í lægri kantinum miðað við hámarksrennsli síðustu Skaftárhlaupa. Rennsli í Eldvatni, nærri þjóðvegi 1, er einnig farið að vaxa jafnt og þétt. Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu, en áfram verður fylgst náið með þróun hlaupsins. 

Graf21082024

Rennsli í Skaftá frá því síðdegis í gær 20. ágúst. Blá lína sýnir rennsli í Skaftá við Sveinstind en rauðlína rennsli í Eldvatni.

Þekkt eru hlaup úr Vestari-Skaftárkatlinum sem ekki ná miklu hámarksrennsli en vara lengi (1-2 vikur). Mögulegt er að slíkt hlaup sé í gangi núna en það er þó enn of snemmt að fullyrða til um það. 

Nú eru um þrjú ár frá síðasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatli sem er óvenju langur tími milli hlaupa. Því er líklegt að þetta hlaup eigi upptök sín þar en það hefur þó ekki enn fengist staðfest. Vegna þessa er töluverð óvissa um áframhald hlaupsins og mögulega stærð þess.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups.  

Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.


Möguleg vá

Það er mikilvægt að íbúar og allir þeir sem leið eiga um flóðasvæðið séu meðvitaðir um þær aðstæður sem upp geta komið og að ferðamenn séu upplýstir um mögulega náttúruvá:  

  • Næstu daga munu flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum.  
  • Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.  
  • Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum, sem og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls þar sem hlaupvatn gæti brotið sér leið upp á yfirborðið.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica