Óvissustigi vegna eldgoss í Geldingadölum aflýst
Ríkislögreglustjóri í samráði við
lögreglustjórann á Suðurnesjum aflýsir óvissustigi vegna eldgoss í
Geldingadölum. Eldgosið hófst 19. mars síðastliðinn og var þá lýst yfir
neyðarstigi, en áður hafði verið í gildi óvissustig vegna jarðhræringa á
Reykjanesskaga. Degi eftir að eldgosið hófst var almannavarnastig lækkað
úr neyðarstigi í hættustig eftir að ljóst var að eldgosið var fjarri þéttbýli
og helstu mannvirkjum. Fjórum vikum eftir að síðast sást til elds í
Geldingadölum var almannavarnastig fært aftur niður á óvissustig.
Reykjanesskaginn er virkur og er áfram vaktaður
Ekki hefur sést til hraunflæðis frá gígnum í Geldingadölum frá 18. september og
þær jarðskjálftahrinur sem hafa orðið síðan þá hafa ekki leitt til frekari
atburða. Engin merki eru um að grunnstæð kvika sé á ferðinni, né að kvika
sem liggur mun dýpra (~15 km) sé að leita upp. Reykjanesskaginn er virkur
með tilliti til jarðskjálfa- og eldvirkni og verður áfram fylgst vel með þróun
atburða og almannavarnastig reglulega endurmetin.
Vakin er athygli á því að varhugavert getur verið að fara inn á hraunbreiðuna
við Geldingadali og að gígum. Töluverðan tíma getur tekið fyrir hraun að kólna
og ennþá er yfirborð og gígar óstöðugir, hrun getur orðið eða sprungur geta
myndast. Auk þess má búast við að afgösun hraunsins haldi áfram um
einhvern tíma og hættulegar aðstæður myndast þar sem gas getur safnast saman.