Fréttir
Thri-kl1800
Ölduspá í gildi kl 18 á þriðjudag 20. febrúar 2024. Þar er verið að spá allt að 8 m ölduhæð við suður- og vesturströnd landsins. Fjöruferðir í öldugangi eru hættulegar. Djúp kyrrstæð lægð orsakaði ölduganginn

Óvenjumikill öldugangur við suður- og vesturströnd landsins

Fjöruferðir í öldugangi eru hættulegar. Djúp kyrrstæð lægð orsakaði ölduganginn

22.2.2024

Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 var óvenjumikill öldugangur við suðurströnd landsins, ekki síst á Arnarstapa og í Reynisfjöru og höfðu sumir aldrei áður séð neitt þessu líkt. Á Garðskaga og við Grindavík mældist um 8 metra ölduhæð. Ástæðan var lægð suðvestur í hafi, sem olli lágum loftþrýstingi og suðlægum áttum. Lágur loftþrýstingur hækkar sjávaryfirborð og sjávarföll, sem geta aukið eða minnkað öldugang eftir því sem að flæðir að eða fjarar út. Vindur sem blæs yfir sjó og vötn mynda öldur sem verða stærri eftir því sem vindur er hvassari og áhrifin verða meiri með tíma og vegalengd.

Hvöss sunnan- og suðvestanátt magnaði ölduhæð yfir um 1500 km hafsvæði

Vindar yfir landinu þennan dag voru að jafnaði suðlægir, en mjög hægir. Á yfirborðskorti (sjá mynd) sést djúp, kyrrstæð lægð skammt austur af Hvarfi, sem blæs hvössum suðvestanvindi yfir hafið að landinu. Þessi lægð ber án efa ábyrgð á ölduganginum, því að hvöss sunnan- og suðvestanáttin hefur magnað ölduhæð yfir um 1500 km hafsvæði áður en aldan náði landi sem sést greinilega á öldukortinu.

Thri-20-feb

Yfirlitskort yfir Norður-Atlantshaf frá kl 6 á þriðjudagsmorgun sést djúp lægð við Hvarf sem olli miklum öldugangi við Íslands strendur síðdegis á

Thri-kl1800

Ölduspá í gildi kl 18 á þriðjudag. Þar er verið að spá allt að 8 m ölduhæð við suður- og vesturströnd landsins.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica