Viðvörun vegna vatnavár
Spáð er mikilli úrkomu
Rétt er að vekja athygli á að í yfirstandandi viku sýna veðurspár mikinn lægðagang og því ljóst að vikan verður vætu- og vindasöm.
Á mánudegi og aðfaranótt þriðjudags er spáð mikilli úrkomu á vestanverðu landinu frá sunnanverðum Vestfjörðum um Snæfellsnes austur í Ölfus.
Aðfaranótt miðvikudags fer önnur lægð yfir með mikilli úrkomu frá Snæfellsnesi að sunnanverðum Vatnajökli. Aðfaranótt fimmtudags fram á föstudagsmorgun er svo búist við mikilli úrkomu á svæðinu frá Mýrdalsjökli að sunnanverðum Austfjörðum.
Í slíku vatnsveðri má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum þar sem veðrið gengur yfir, svo fólki á ferð er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Fylgst verður með skriðuhættu í tengslum við þetta vatnsveður.
Sérfræðingar á vakt:
Kristjana G. Eyþórsdóttir vatnavársérfræðingur
Matthew J. Roberts vatnavársérfræðingur
Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur
Harpa Grímsdóttir skriðusérfræðingur