Fréttir
Vindaspá fyrir 10. mars 2015 kl. 18:00.

Versnandi veður

Brestur á með illviðri sunnanlands og vestan

10.3.2015

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á eftirfarandi:

Viðvörun

Búist er við stormi eða roki (meðalvindur 20-28 m/s) eftir hádegi í dag. Veðurspáin fyrir daginn, 10. mars er svohljóðandi:

Ört vaxandi suðaustanátt um hádegi, 18-28 m/s um þrjúleytið með mjög snörpum vindhviðum við fjöll S- og V-lands en hvessir N- og A-til í kvöld. Snjókoma í fyrstu, en síðan slydda eða rigning á láglendi. Talsverð úrkoma á S-verðu landinu og hlýnar um stund, en úrkomuminna NA-til. Snýst í sunnan 18-28 með slydduéljum í kvöld, hvassast vestast og kólnar aftur. Hægari um miðnætti.

Athugasemd veðurfræðings

Búist er við vonskuveðri frá því eftir hádegi fram á nótt. Skyggni verður lélegt vegna snjókomu og skafrennings og má búast við samgöngutruflunum á láglendi sem og á fjallvegum. Veðrið gengur yfir S- og V-lands í kvöld en um miðnætti NA-lands.

Veðurstofunni, mán. 10. mars 2015 kl. 10:30
Vakthafandi veðurfræðingar
Hrafn Guðmundsson
Þorsteinn V. Jónsson



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica