Fréttir
Spá fyrir vind kl. 17 miðvikud. 25. febrúar. Rautt og gulbrúnt: hættulegasti vindurinn.

Viðvörun - stormur eða rok

Spáð 20 - 28 m/s sunnan- og vestanlands

24.2.2015

Veðurstofan vekur athygli á eftirfarandi viðvörun:

Búist er við stormi eða roki (meðalvindur 20-28 m/s) á landinu á morgun.

Veðurspáin á næstunni er svohljóðandi:

Í dag (þriðjudag) er útlit fyrir tiltölulega rólegt veður, minnkandi norðaustlæga átt, 5-13 m/s síðdegis. Él eða dálítil snjókoma í flestum landshlutum. Frost 0 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.

Á morgun gengur í suðaustan og austan 20-28 m/s sunnan- og vestanlands með snjókomu eða slyddu en síðar rigningu syðst. Hægari og úrkomulítið á Norður- og Austurlandi en hvessir einnig þar síðdegis með ofankomu. Vægt frost á morgun en hiti um eða yfir frostmarki sunnantil seinnipartinn.

Á miðvikudagskvöld og aðfaranótt fimmtudags dregur verulega úr vindi og úrkomu á landinu. Þó má reikna með að áfram verði hvasst og snjókoma á Vestfjörðum og gæti gengið í norðan ofsaveður þar á fimmtudagsmorgun með talsverðri ofankomu.

Athugasemd veðurfræðings:

Það má búast við samgöngutruflunum á landinu á morgun, fyrst um landið sunnan- og vestanvert.

24. febrúar 2015 kl. 12:00
Vakthafandi veðurfræðingar
Teitur Arason og Haraldur Eiríksson



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica