Fréttir
Væntanlegt nýtt reiknisvæði.

Aukið samstarf við dönsku veðurstofuna DMI

Samrekstur ofurtölvu á Íslandi

12.11.2014

Í dag var undirritaður samstarfssamningur Veðurstofu Íslands og dönsku veðurstofunnar, DMI, þar sem m.a. er kveðið á um stóraukið samstarf á sviði rannsókna og veðurtengdrar þjónustu.

Veðurspár hafa þróast mikið á síðustu árum. Mælingar með fjarkönnunargögnum eins og gervitunglum og veðursjám hafa þar mikla þýðingu. Líkönin sem notuð eru hafa þróast samhliða. Með betri líkönum og fleiri gögnum er unnt að spá fyrir um veður af enn meiri nákvæmni. Til þess þarf mikla reiknigetu sem fæst aðeins með ofurtölvum.

Ofurtölva er þörf

Flestar veðurstofur í Evrópu reka sínar eigin ofurtölvur til þess að reikna veðurspár, þar á meðal danska veðurstofan. Þróun ofurtölva er hröð og kröfur til veðurstofa um nákvæmari og hraðari uppfærslu á veðurspám kallar á hraðari uppfærslur á ofurtölvunum en áður. Á sama tíma er þrengt að fjárhag veðurstofa, þær verða að leita leiða til að hagræða og ein leið er samstarf um ofurtölvur og þar með hagkvæmni í rekstri.

Samstarf undirritað
""
Marianne Thyrring, forstjóri DMI og Hafdís Karlsdóttir, staðgengill forstjóra Veðurstofu Íslands, undirrita samstarfssamning 12. nóvember 2014 að Bústaðavegi 7.

Fyrir um það bil ári síðan leitaði danska veðurstofan eftir samstarfi við Veðurstofu Íslands um rekstur á næstu ofurtölvu sinni. Hún mun hafa tíu sinnum meiri reiknigetu en sú tölva sem danska veðurstofan er með í dag og þarf mun meira rafmagn.

Ávinningur Dana

Orka í Danmörku er dýr og ekki framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum nema að mjög litlu leyti. Opinberar stofnanir í Danmörku eru undir ströngum kvótum um losun gróðurhúsaloftegunda sem gerir þeim nær ómögulegt að endurnýja ofurtölvu sína og reka hana í Danmörku. Ísland býr vel hvað þetta varðar. Við framleiðum rafmagn með endurnýjanlegum orkugjöfum á samkeppnishæfu verði. Með samstarfi Veðurstofu Íslands og dönsku veðurstofunnar um rekstur ofurtölvunnar njóta Danir umhverfisvænna orkugjafa landsins, sjá danska frétt.

Ávinningur Íslendinga

Veðurstofunni gefst nú tækifæri til að stækka reiknisvæðið í kringum Ísland og þá sérstaklega suðvestur af landinu, sem er mikilvægur hluti þjónustusvæðisins. Þannig verður hægt að veita enn betri veðurþjónustu almennt og til aðila sem eiga mikið undir góðum upplýsingum um veðurfar, s.s. bændur, ferðamenn og sjófarendur, auk enn betri þjónustu við alþjóðaflug.

Frá því að veðurmælingar hófust á Íslandi 1749 hefur samstarf við Dani verið gott og stuðningur frá þeim ómetanlegur. Samningurinn þessi gerir Veðurstofunni nú kleift að bæta þjónustu sína á öllum sviðum; í veðurspám, hafísspám, reikningum á fortíðarloftslagi og framtíðarsviðsmyndum mögulegra loftslagsbreytinga. Hann veitir einnig betri tækifæri til styrkumsókna, bæði úr norrænum og evrópskum rannsókna- og þróunarsjóðum.

Lesa má frétt á vef danska ráðuneytisins sem haft hefur milligöngu um þetta mál.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica