Fréttir
Dæmi: Úrkomuspá fyrir 2. júlí kl. 12:00.
1 2
næsta

Viðvörun vegna óvenju djúprar lægðar 1. - 5. júlí

30.6.2014

Á morgun, þriðjudag er spáð alldjúpri lægð fyrir suðvestan og vestan land.

Vindáttin verður suðaustlæg og má búast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast SV- og V-lands og hviður við fjöll allt að 35 m/s. Þessu fylgir mikil rigning, mest sunnanlands síðdegis og um kvöldið.

Á miðvikudag er að sjá að lægðin fari norðaustur yfir landið og verði við NA- ströndina síðdegis. Vindur snýst í vestan og norðvestan 10-20 m/s, hvassast norðvestantil. Áfram vætusamt, einkum á N- og NV-landi.

Á fimmtudag er útlit fyrir að dragi úr vindi, en áfram er spáð talsverðri rigningu á norðanverðu landinu.

Búast má við miklum vatnavöxtum á landinu næstu daga (sjá Vatnafar) og að gefnu tilefni viljum við minna ferðalanga, bæði þá sem eru með aftanívanga og aðra að huga sérstaklega að veðurathugunum og veðurspá næstu daga.

Vinsamlegast skoðið uppfærð kort með vindaspá og úrkomuspá og fylgist með gulum viðvörunarborða í haus vefsins. Þar birtast tilkynningar örar heldur en hér í fréttum vefsins.

Vakthafandi veðurfræðingar: Elín Björk Jónasdóttir og Haraldur Eiríksson

Viðvörun vegna vatnavár

Spáð er mikilli rigningu á Vestur-, Suðvestur-, Suður- og Suðausturlandi frá seinni hluta mánudags, 30 júní, og fram yfir miðnætti á miðvikudag. Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla á þessum svæðum, sólarhringsúrkoma gæti farið vel yfir 150 mm og afrennsli mun aukast verulega (sjá kort). Varað er við vexti í ám á Snæfellsnesi, vestur- og suður af Langjökli, kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.

Samkvæmt nýjustu veðurspám gætu vatnavextir orðið svo miklir að flóðahætta skapist. Ferðafólk er því eindregið varað við að aka yfir varhugaverð vöð á ám á ofangreindum svæðum. Einnig er varað við mögulegri hættu á aurflóðum í sunnanverðum Eyjafjallajökli, sem t.d. gætu fallið í Svaðbælisá.

Afrennslisspá
""

Uppsafnað afrennsli (úrkoma og leysingarvatn) í millimetrum frá kl. 07:00 mánudaginn 30 júní til kl. 06:00 miðvikudaginn 2. júlí 2014. Athugið að þessi spá nær aðeins 48 klst fram í tímann og úrkoma og leysing mun halda áfram á miðvikudag. Stærra kort.

Vatnavársérfræðingar: Þorsteinn Þorsteinsson og Matthew J. Roberts



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica