Fréttir

Alþjóðlega ráðstefnan 2014 um aðlögun að breytingum á veðurfari

Þriðja norræna alþjóðlega ráðstefnan um veðurfarsbreytingar og aðlögun að þeim

21.2.2014

Veðurstofan vill aftur vekja athygli á þriðju norrænu alþjóðlegu ráðstefnunni um veðurfarsbreytingar og aðlögun að þeim, sem haldin verður á sumri komanda. Heiti ráðstefnunnar er: The 3rd Nordic International Conference on Climate Change Adaptation “Adapting to Change: From Research to Decision-making."

Ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn 25. - 27. ágúst 2014. Útdrætti erinda skal skilað inn fyrir miðjan janúar og skráning hefst um miðjan febrúar. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu ráðstefnunnar og í uppfærðu kynningarskjali, sjá einnig eldri tilkynningu.

Umræðuefni

Það er þekkt og almennt viðurkennt að áhrif veðurfarsbreytinga á samfélagið geta skipt miklu máli, einkum það sem gerist sjaldan en hefur mikil áhrif, svo sem stormar og flóð. Þó er sjaldan litið til þessara þátta í ákvarðanatöku. Því veldur meðal annars lítill skilningur á óvissuþáttunum. Hvernig er best að heimfæra veðurfarsbreytingar upp á samfélagið og gera úr þeim hagnýtar og þrepaskiptar upplýsingar fyrir hin ýmsu svið þjóðfélagsins? Umræðuefni sem falla undir þetta eru t.d.:

  • Áhættufælni og félagsleg forgangsröðun sem drifkraftur aðlögunar
  • Kostnaður við aðgerðaleysi
  • Áhættustýring sem tæki til ákvarðanatöku
  • Öfgar í veðri – verstu atburðir
  • Sviðsmyndir mestu losunar
  • Stjórnun samhliða atburða

Tímabært er að skilgreina og innleiða ferli sem miða að því að hámarka aðlögun að breytilegu veðurfari á sveigjanlegan og sjálfbæran hátt.

Síðasta ráðstefna af þessum toga var haldin í Helsinki árið 2012 (sjá eldri frétt). Tengiliðir á Veðurstofunni eru þau Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri og Halldór Björnsson, verkefnisstjóri loftslagsrannsókna.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica