Jarðskjálftahrina úti fyrir mynni Eyjafjarðar
Jarðskjálftahrina hófst úti fyrir mynni Eyjafjarðar að kvöldi 24. september og stendur hún enn. Um 1000 skjálftar hafa mælst, þegar þetta er skrifað, á hádegi 3. október.
Flestir hafa verið innan við þrjú stig en nokkrir stærri sem hafa fundist á Siglufirði og Ólafsfirði. Í gærkveldi klukkan 19:40 varð skjálfti 3,8 að stærð og er það stærsti skjálfti sem hefur mælst í hrinunni. Tilkynningar bárust um að hann hefði fundist á Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði. Í fyrrahaust varð skjálftahrina á svipuðum slóðum og mældust þá tveir skjálftar yfir fimm stigum, annar 5,2 og hinn 5,6 þann 21. október. Virkasta svæðið í fyrra var norðvestan og suðaustan við það svæði sem skjálftarnir raða sér nú á. Talsvert er óunnið af skjálftum þessarar hrinu.