Fréttir
græn strá í svartri ösku
Grænn gróður gægist upp úr öskulagi.

Landheilsa – Loftgæði – Lýðheilsa

Málþing í Öskju

13.11.2012

Landgræðsla ríkisins og Umhverfisstofnun í samstarfi við Landlæknisembættið halda málþing um loftmengun af völdum jarðvegsryks föstudaginn 16. nóvember 2012.

Heilnæmt andrúmsloft eru mikilvæg lífsgæði.

Í andrúmsloftinu er ógrynni ýmis konar agna eða svifryks, sem myndast bæði af völdum náttúrunnar sjálfrar og af mannavöldum. Svifryk hefur neikvæð áhrif á heilsu manna, einnig svifryk af jarðefnauppruna þótt þar sé um að ræða „hreint“ ryk. Rykmengun frá iðnaði og útblæstri bíla hefur gegnum árin fengið mikla athygli en minna hefur farið fyrir umræðu um ryk sem rekja má til uppblásturssvæða, landbúnaðar eða gosösku.

Á málþinginu er augum beint að rykmengun með jarðefnauppruna, áhrifum hennar á heilsu og hvað hægt er að gera til að lágmarka hana. Losun agna og mengandi efna út í andrúmsloftið stjórnast því m.a. af ráðstöfun lands, skipulagi, umgengi við framkvæmdir, ástandi vistkerfa og jarðvegsrofi.

Málþingið er þverfaglegt og er ætlað sem vettvangur milli náttúruvísinda, lýðheilsuvísinda, hagfræði, stjórnsýslu, landnotenda og framkvæmdaaðila.

Dagskrá málþingsins má lesa á vef Landgræðslunnar. Meðal annars mun sérfræðingur frá Veðurstofu Íslands fjalla um mælingar á öskufoki á Suðurlandi í kjölfar Grímsvatnagossins 2011.

Málþingið verður haldið í Háskóla Íslands föstudaginn 16. nóvember 2012 kl. 13:30-16:30, í stofu 132 í Öskju. Það er öllum opið og aðgangur ókeypis.

Landgræðsla ríkisins, Umhverfisstofnun og Embætti landlæknis



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica