Fréttir
tré og snjór
Mývatnssveit í september 2012.

Viðvörun vegna norðanveðurs næstu daga

30.10.2012

Veðurstofan bendir á að vonskuveður verður um norðanvert landið næstu daga. Búast má við norðanátt og snjókomu með vindhraða á bilinu 13-20 m/s.

Gert er ráð fyrir stormi (meira en 20 m/s) norðvestantil á landinu á morgun, miðvikudag, og víða um land annað kvöld. Eins gera spár ráð fyrir áframhaldandi stormi á fimmtudag og föstudag með ofankomu fyrir norðan.

Sunnantil á landinu verður hvasst og víða mjög hvassar vindhviður við fjöll, en lengst af þurrt og ætti úrkoma þar að vera minniháttar. Frost lengst af 0 til 6 stig.

Mjög slæmt ferðaveður verður því næstu daga og ekki er búist við að veður fari að ganga niður fyrr en seint á laugardag og sunnudag.

Þar sem norðanáttin er langvinn má reikna með miklum áhlaðanda sjávar. Reikna má með að ölduhæð geti náð 12 metrum norður og austur af landinu og samfara hárri sjávarstöðu gæti það valdið vandræðum á hafnarsvæðum, einkum fyrir norðan. Eru menn hvattir til þess að huga að bátum í höfnum og hafa í huga að ísing getur myndast og hlaðist á báta á skömmum tíma.

Eins hvetur Veðurstofan húsdýraeigendur til þess að koma skepnum sínum í skjól ef kostur er.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica