Fréttir
fyrir stafni úfið haf
Siglt á Grænlandssundi í október 2008.

Sumarþing Veðurfræðifélagsins 2011

3.6.2011

Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið næstkomandi mánudag 6. júní 2011 í Orkugarði að Grensásvegi 9. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Að þessu sinni fjallar fyrri hluti erindanna um greiningar á veðurfari og aðferð til reikninga á staðbundnu veðri. Seinni hluti erindanna snýr að eldgosunum í Grímsvötnum 2011 og Eyjafjallajökli.

Dagskrá þingsins

  • 13:00 – Inngangur
  • 13:05 – Trausti Jónsson: Árið 2010: Hvar er það í myndinni?
  • 13:20 – Guðrún Nína Petersen: Vindar á Grænlandssundi
  • 13:35 – Ólafur Rögnvaldsson: WRFLES
  • 13:50 – Trausti Jónsson: Þurrkarnir 2009 til 2010 í Reykjavík.
  • 14:05 – Halldór Björnsson og Sindri Magnússon: Dýrasti vindsniðsmælir sögunnar – Vindsnið reiknuð með mekki Eyjafjallajökulgossins

14:20 – Kaffihlé

  • 14:45 – Halldór Björnsson – Grímsvötn 2011: Frá veðurfræðilegu sjónarhorni
  • 15:00 - Elín Björk Jónasdóttir – Grímsvatnagosið 2011: Á vaktinni
  • 15:15 – Þórður Arason – Eldingar í Grímsvatnagosi 2011
  • 15:30 – Sibylle von Löwen – Grímsvötn 2011: Öskumælingar
  • 15:45 – Umræður

16:00 – Þingi slitið

Frekari upplýsingar og stutt ágrip hluta erindanna eru á vefsíðu Veðurfræðifélagsins.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica