Fréttir
veggspjald, kynningarefni WCC-3, lítil stúlka faðmar hnöttinn okkar
Loftslagsráðstefnan World Climate Congress-3 í Kaupmannahöfn haustið 2009.

Þingið WCC-3 um loftslagsbreytingar

Aðlögun og loftslagsspár

2.9.2009

Þing Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar um loftslagsbreytingar stendur yfir 31. ágúst - 4. september.

Á ensku er þessi ráðstefna kölluð World Climate Congress-3 (WCC-3) en hinar tvær fyrri voru stefnumarkandi í loftlagsmálum; leiddu til stofnunar Milliríkjanefndar Sþ um loftslagsbreytingar (IPCC) og Rammasamnings Sþ um loftslagsbreytingar (UNFCCC).

Forstjóri Veðurstofu Íslands, Árni Snorrason, er á þinginu og heldur erindi um norrænar rannsóknir sem varða loftslags-, orku- og umhverfismál, og Ísland er þáttakandi að.

Sá vandi sem stafar af auknum gróðurhúsalofttegundum krefst tvíþættra aðgerða:

  • Annarsvegar þurfa þjóðir heims að ná samkomulagi um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og þannig draga úr umfangi loftslagsbreytinga.
  • Hinsvegar þarf að gera ráðstafanir til aðlögunar að þeim loftslagsbreytingum óhjákvæmilegar eru.

Áætlað er að samningar um samdrátt í losun verði til lykta leiddir á COP-15, þ.e. fimmtándu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember.

Á WCC-3 (sjá ítarlegri lýsingu, pdf 0,1 Mb) er hinsvegar fjallað um aðlögun að loftslagsbreytingum og hvernig bæta má hana með betri loftslagsspám og upplýsingaveitum. Með loftlagsspám er átt við spár í ætt við veðurspár sem geta gefið til kynna líkindi á afbrigðilegu veðri næstu misseri, og úrvinnslu niðurstaðna loftslagslíkana sem geta gefið til kynna líklegar breytingar ýmissa þátta á næstu áratugum.

kynningarborði af vefsíðu WCC-3


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica