Fréttir
Yfirmannaskipti
Árni Snorrason tekur við lyklum að forstjóraskrifstofu Veðurstofunnar úr hendi Magnúsar Jónssonar.

Ný Veðurstofa Íslands tekin til starfa

9.1.2009

Ný stofnun, Veðurstofa Íslands, tók til starfa um áramótin. Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr. 70 frá 11. júní 2008.

Magnús Jónsson, sem verið hefur veðurstofustjóri frá 1. janúar 1994, lét af störfum en við starfi forstjóra tók Árni Snorrason, sem áður var forstöðumaður Vatnamælinga sem sameinuðust Veðurstofunni 1. janúar 2009.

Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, bauð til móttöku í Borgartúni 6 hinn 8. janúar í tilefni af starfslokum Magnúsar Jónssonar og við upphaf nýrrar stofnunar - Veðurstofu Íslands. Hún flutti ávarp þar sem hún þakkaði Magnúsi farsæl störf í þágu stofnunarinnar. Einnig óskaði hún nýjum forstjóra velfarnaðar, sem og stofnuninni sem nýtur mikils trausts meðal almennings samkvæmt skoðanakönnunum.

Ávarp umhverfisráðherra
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra ávarpar gesti. Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir.
Móttaka umhverfisráðherra
Gestir
Starfsfólk Veðurstofu Íslands og aðrir gestir í móttöku umhverfisráðherra. Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir.




 

 



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica