Fréttir
brött klettahlíð, jökull í baksýn
Hvannadalshnjúkur og Dyrhamar. Hafrafell fremst.

Veðrið um verslunarmannahelgina 2008

- byggt á spálíkani ECMWF, dags. 29. júlí 2008

29.7.2008

Veðurútlit fyrir verslunarmannahelgina: Spáin verður endurskoðuð aftur á morgun, 30. júlí.

Víðáttumikið lægðasvæði verður suður af landinu og því verður austan- og norðaustanátt ríkjandi og útlit fyrir ágætisveður um allt land. Norðaustan 5-10 m/s á föstudag og smáskúrir um landið sunnanvert, en skýjað að mestu norðanlands.

Á laugardag og fram á mánudag er útlit fyrir fremur hægan vind og bjartviðri um mestallt land, en hætt við þokulofti við norðaustur- og austurströndina.

Hlýtt verður í veðri, hiti víða 14 til 22 stig, einna hlýjast vestanlands. Kólnar heldur þegar líður á helgina.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica