Fréttir
Múlakvísl við þjóðveginn í morgun
Múlakvísl við þjóðveginn í morgun.

Lítið hlaup í gangi í Múlakvísl

Mikil gasmengun fylgir hlaupinu. Hlaupið ekki enn náð hámarki og gæti vaxið.

1.10.2019

Rafleiðni hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo daga í Múlakvísl og er nú um 260 míkróS/cm. Mikið vatn er í ánni miðað við árstíma en þó minna en hámarks sumarrennsli. Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hinsvegar hlaupinu að þessu sinni. Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem eru um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Í nótt mældist þar hæsta gildi brennisteinsvetnis (H2S) um 20 ppm, sem er yfir heilsuverndarmörkum. Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax.

Miðað við fyrri hlaup í Múlakvísl og þau gögn sem liggja fyrir er líklegt að hlaupið standi yfir í einhverja daga til viðbótar. Veðurstofan, Almannavarnir og viðbragðsaðilar á svæðinu munu fylgjast náið með framvindu mála næstu sólarhringa.

Katlar 10 og 11 með Austmannsbungu í baksýn. Myndina tók Reynir Ragnarsson í morgun.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica