Fréttir
Askja-gervitunglamynd
Gervitunglamynd frá 31. maí sem sýnir Öskjuvatn og næsta umhverfi þess.

Land heldur áfram að rísa í Öskju á stöðugum hraða og eru engar vísbendingar um aukna virkni umfram það.

Stöðugt landris í Öskju síðan í lok september 2021

16.6.2023

Aflögunarmælingar (GPS og InSAR) sýna að landris heldur áfram í Öskju á stöðugum hraða síðan í lok september 2021. Landris í Ólafsgígum, rétt vestan Öskjuvatns, nemur nú um 60 cm síðan það hófst í ágúst 2021. Samkvæmt líkanreikningum eru upptök aflögunarinnar á um 2,5-2,9 km dýpi undir Öskju og staðsetning hefur verið óbreytt síðan í september 2021. 
Olafsgigar
Grafið sýnir landris í Ólafsgígum, rétt vestan Öskjuvatns, frá því í ágúst 2021 til 15. júní 2023 sem nemur um 60 cm

Frá lokum 2021 til miðjan júní 2023 hafa á bilinu 20 – 60 skjálftar (Yfir 0,5 að stærð) mælst í Öskju í hverjum mánuði og skjálftavirkni verið frekar stöðug. Stærstu skjálftar hvers mánaðar hafa verið frá tæplega 2 að stærð upp í 3,1. Þegar landris var hraðast í september 2021 mældust nærri 150 jarðskjálftar í mánuði. 

Skjalftar

Grafið sýnir jarðskjálftavirkni í Öskju frá janúar 2021 til miðjan júní 2023. Bláar súlur sýna fjölda jarðskjálfta (stærri en 0,5) í hverjum mánuði og punktarnir merkja stærsta jarðskjálftann í mánuðinum.

Veðurstofan vaktar Öskju með Jarðskjálfta- og GPS mælingum ásamt gögnum úr gervitunglum. Á gervitunglamyndum sést að síðan í lok maí hefur yfirborð Öskjuvatns verið íslaust eins og önnur vötn á svæðinu.

Nánari upplýsingar um Öskju má finna í Íslensku Eldfjallavefsjánni.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica