Fréttir

Hvers virði er vatnið?

Alþjóðlegur dagur vatnsins 22. mars

22.3.2021

Sameinuðu þjóðirnar hafa haldið upp á dag vatnsins þann 22. mars frá árinu 1993. Markmið Sþ með deginum er m.a. að auka vitund fólks á nauðsynlegu aðgengi að hreinu vatni en í dag skortir um 2,3 milljarð manna aðgang að öruggu vatni. Eitt af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er einmitt að tryggja aðgengi allra að hreinu vatni og tryggja sjálfbærni á nýtingu þess. Veðurstofan sinnir vöktun og rannsóknum á vatnafari landsins og er ein af þeim stofnunum sem eiga aðild að Íslensku vatnafræðinefndinni á vegum UNESCO.

Vatn er mikils virði

Hér á Íslandi höfum við hingað til tekið hreinu vatni sem sjálfsögðum hlut og oft vill gleymast að skortur á hreinu vatni hefur vissulega áhrif á heilsu manna. Ljóst er þó að við þurfum ekki að kljást við jafn alvarlegar áskoranir margaraðrar þjóðir.

Vatn er mikilvæg auðlind fyrir hag og lífsgæði þjóðarinnar og það er samfélagsleg ábyrgð að tryggja gæði auðlindarinnar og sjálfbæra nýtingu hennar.

Heilnæmt vatn í nægu magni er forsenda flests sem við tökum okkur fyrir hendur og flestra þeirra framleiðniferla sem við byggjum á hagsæld landsins á auk þess að vera samtvinnuð orkuframleiðslu landsins í mun meira mæli en á flestum öðrum stöðum. Vatn er þannig mjög stór hluti af lífsgæðum Íslendinga. En það eru blikur á lofti og mikilvægt að huga að áherslum með langtímamarkmið að leiðarljósi. Breytt landnýting s.s. aukinn þéttleiki byggðar og aukin áhersla á framleiðslu afurða sem byggja á nýtingu vatns s.s. fiskeldi geta orsakað vatnstöku umfram svæðisbundna getu, aukin þörf lítt mengandi orkugjafa hefur áhrif á vatnafarslega eiginleika auk þess sem vænta má að loftslagsbreytingar geta aukið álag á vatn.

Á degi vatnsins í ár er fólk einmitt hvatt til þess að hugsa um hvers virði vatnið er og hvað við getum gert  til að viðhalda þeim lífsgæðum sem fylgja öruggu framboði af hreinu vatni. Til hamingju með daginn!



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica