Fréttir
Deildarmyrkvinn líkt og hann mun líta út í Reykjavík 10. júní kl. 10:17. Þá skyggir tungl á 69% af þvermáli sólar og veldur 61% myrkvun. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.

Deildarmyrkvi á sólu á Íslandi 10. júní

Almyrkvi mun sjást á Íslandi eftir fimm ár

8.6.2021

Deildarmyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi 10. júní næstkomandi.  Í deildarmyrkva fer tunglið fyrir hluta sólarinnar, en ekki verður almyrkvi.  Í Reykjavík hefst myrkvinn kl. 09:06 og lýkur kl. 11:33.  Hann verður mestur kl. 10:17, en þá skyggir tungl á 69% af þvermáli sólar og veldur 61% myrkvun. Mesta myrkvun á Íslandi verður breytileg eftir landsvæðum, 56-65% og tímasetningu getur skeikað um nokkrar mínútur frá Reykjavík.  Skýjafar og veður hafa mikil áhrif á hversu vel myrkvinn sést.

„Þetta verður mesti sólmyrkvi á Íslandi frá því fyrir sex árum, 20. mars 2015, en þá varð 98% myrkvun í Reykjavík og yfir 99% á Austfjörðum, en þá sást almyrkvi á Svalbarða og í Færeyjum“ segir Þórður Arason, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Því miður lítur ekki vel út með veðrið á fimmtudaginn og stefnir í rigningu víða um land, en þó er ekki útilokað að það rofi til smástund einhversstaðar“, segir Þórður og minnir á að til að vernda augun er nauðsynlegt að hafa sérstök gleraugu við að skoða sólmyrkva!


Nauðsynlegt er að hafa sérstök sólmyrkvagleraugu við að skoða sólmyrkva, til að vernda augun.  (Ljósmynd: Veðurstofan / Þórður Arason).

Þessi myrkvi mun hvergi sjást á jörðinni sem almyrkvi, en mun koma fram sem hringmyrkvi við sólarupprás í Ontario í Kanada, færist svo hratt í norður, yfir norðurhluta Grænlands og endar í Síberíu.  Við hringmyrkva er tunglið of langt frá jörðu til að hylja alla sólina og sólin nær að skína hringinn í kringum tunglið.


Almyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi eftir fimm ár

Eftir fimm ár, 12. ágúst 2026 um kl. 17:45, verður fyrsti almyrkvi á sólu á Íslandi síðan 1954, og sá þrettándi frá landnámi.  Almyrkvinn mun sjást á öllu vestanverðu landinu og mun vara í 1 mín í Reykjavík, en lengst 2 mín 13 s á Bjargtöngum.  Almyrkvi á sólu sást síðast í Reykjavík árið 1433.


Braut almyrkvans 12. ágúst 2026, miðjan er sýnd með rauðri línu og breidd skugga almyrkvans afmarkast af bláu línunum.  Almyrkvinn verður lengstur í punkti GE á Breiðafjarðarmiðum, 2 mín 18 s.  (Kort: NASA).


Uppfært 11.06.

Þrátt fyrir að veðurspáin liti ekki vel út var samt góður möguleiki á að það yrðu rof í skýjabreiðunni á stöku stað.  Það gekk eftir á höfuðborgarsvæðinu og þátt fyrir skýjað veður og skúrir, rofaði stundum til og sást til sólar.  Þegar ský gengu fyrir mátti vel horfa á deildarmyrkvann með berum augum.


Deildarmyrkvinn nálægt hámarki séður frá Kópavogi, 10. júní 2021 kl. 10:15. (Ljósmynd: Veðurstofan / Þórður Arason)



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica