Fréttir

Alþjóðadagur Hamfaraminnkunnar haldinn í 30. sinn

Markmiðið er að vekja athygli á aðgerðum, aðferðum og viðbúnaði til að draga úr áhrifum hamfara á jarðarbúa

24.10.2019

Þann 13. október s.l. var Alþjóðadagur Hamfaraminnkunnar haldinn í 30. sinn. En árið 1989 tilnefndu Sameinuðu Þjóðirnar 13. október, Dag Hamfaraminnkunnar (International Day for Disaster Reduction). Markmiðið er að vekja athygli á aðgerðum, aðferðum og viðbúnaði til að draga úr áhrifum hamfara á jarðarbúa og hvað er hægt að gera til að auka seiglu samfélaga til að takast á við hamfarir.

Undanfarin ár hefur dagurinn verið nýttur til að vekja athygli á markmiðunum sjö sem sett eru fram í Sendai-rammaáætluninni sem Sameinuðu Þjóðirnar samþykktu í mars 2015. Seindai-rammaáætlunin gengur út á aðgerðir til að draga úr áhrifum hamfara 2015-2030. Hann er kenndur við borgina Sendai í Japan ( SendaiFramework for Disaster Risk Reduction 2015-2030 ) en þar urðu miklar hamfarir eftir jarðskjálftann mikla og flóðbylgjuna sem varð í kjölfar hans 11. mars 2011. Markmiðin sjö sem sett voru fram eru í stuttu máli eftirfarandi: 

  • SendaiAð verulega hafi dregið úr dauðsföllum, sem rekja má til hamfara.
  • Að verulega hafi dregið úr fjölda þeirra sem verða fyrir áhrifum hamfara.
  • Að dregið hafi úr efnahagslegum áhrifum vegna hamfara.
  • Að verulega hafi dregið úr áhrifum af hamförum á mikilvæga innviði og röskun á undirstöðu þjónustu s.s. heilbrigðis- og menntakerfi.
  • Að auka verulega fjölda landa sem hafa aðgerðaráætlun til að draga úr áhrifum hamfara á samfélagið.
  • Að auka verulega alþjóðlegt samstarf til þróunarlanda með því að aðstoða við uppbyggingu áætlana til að framfylgja Sendai rammaáætluninni.
  • Að auka verulega á aðgengi upplýsinga um spár, viðvaranir og hættu- og áhættumöt.   

Í ár var áherslan lögð á markmiðið sem snýr að því að draga úr áhrifum hamfara á mikilvæga innviði og röskun á undirstöðu þjónustu s.s. heilbrigðis- og menntakerfi.

Hættu- og áhættumat falla vel að Sendai rammaáætluninni

Ísland er aðili að Sendai rammaáætluninni 2015-2030 og er hún tengd inn í Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna, sérstaklega markmið 11 Sjálfsbærar borgir og samfélög og markmið 13 Aðgerðir í Loftslagsmálum. Sú vinna sem unnið hefur verið að hér á landi undanfarna rúma tvo áratugina varðandi hættu- og áhættumat vegna náttúruvár, falli vel að Sendai rammaáætluninn og markmiðunum sjö. En Veðurstofa Íslands ásamt samstarfsaðilum hafa unnið að hættu- og áhættumati vegna snjóflóða frá 1996, vegna eldgosa frá 2012 og vatns- og sjávarflóða frá 2015. Þessi verkefni eru mjög mikilvægur þáttur í því að draga úr tjóni samfélagsins vegna náttúruhamfara, en megin tilgangur áhættumats vegna náttúruvár er að draga verulega úr líkum á dauðsföllum vegna þeirra, og lágmarka tjónnæmi samfélagsins og byggja upp seiglu þess. Gerð hættu- og áhættumats vegna náttúruvár, mun gera okkur sem samfélag betur í stakk búin til að takast á við afleiðingar þess og jafnvel koma í veg fyrir eða draga verulega úr líkum á hamförum.

SvinaMaelir

Mælibúnaði komið upp í Svínafellsheiði. Nú er unnið að hættumati fyrir Svínafellsjökul og svæðið neðan hans. Í því þarf að leggja mat á hvað getur gerst og hversu stórt áhrifasvæði berghlaups yrði. (Ljósmynd: Þorsteinn Sæmundsson)



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica