Uppfært 1. desember kl. 16:45
Áfram dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga og mælast nú mun færri og smærri skjálftar heldur en síðustu vikur. Flestir skjálftar eru að mælast undir einum að stærð. Virknin er mest milli Sýlingarfells og Hagafells þar sem að kvikugangurinn liggur. Að öllum líkindum er kvikan sem er að safnast undir Svartsengi að fóðra þann kvikugang. Ennþá mælist aflögunum á stöðvum nálægt kvikuganginum en talið er að það sé vegna landriss sem er að eiga sé stað við Svartsengi.
Lesa meira
Október 2023 var hlýjasti október mánuður sem mælst hefur á heimsvísu. Yfirborðshiti var að meðaltali 15,3 °C, sem er 0,85 °C yfir meðaltali samanburðartímabilsins 1991-2020 fyrir október og 0,4 °C yfir fyrra meti, sem var október 2019. Hitafrávik á jörðinni fyrir október 2023 var það næst hæsta sem sést hefur síðan mælingar hófust, en metið á september mánuður þessa árs.
Lesa meiraTíðarfar var nokkuð hagstætt í október. Hiti á landsvísu var nærri meðallagi áranna 1991 til 2020. Það var að tiltölu kaldast á Norðausturlandi en hlýrra suðvestanlands. Það var sérlega hægviðrasamt í lok mánaðar.
Lesa meiraÍ nýrri skýrslu vísindanefndar um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi segir að ekki verði um villst, að loftslagsbreytingar eru byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi með vaxandi áskorunum fyrir efnahag, samfélag og náttúru. Til að tryggja að þær áskoranir verði ekki meiri en við er ráðið þarf umbyltingu í lífsháttum og umgengni við náttúruna. Skýrslan var kynnt í dag og er hún fjórða samantektarskýrslan sem kemur út á vegum vísindanefndar sem skipuð er í hvert sinn af ráðherra. Fyrsta skýrslan kom út árið 2000, en síðasta skýrsla kom út 2018.
Lesa meiraFjórða samantektarskýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar verður gefin út og kynnt miðvikudaginn 18. október í Grósku, Reykjavík. Kynningunni verður streymt beint og hefst hún kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00.
Lesa meira