Aflögunargögn fram til 30. desember 2024 sýna að kvikusöfnun
undir Svartsengi heldur áfram.
Líkur eru taldar aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi þegar jafn mikið magn af kviku hefur safnast undir Svartsengi og fór þaðan í kvikuhlaupinu og eldgosinu 20. nóvember. Líkanreikningar sýna að þetta magn er á bilinu 12-15 milljónir rúmmetra. Miðað við hraða kvikuinnflæðis undir Svartsengi í dag má því gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast í lok janúar.
Lesa meiraVeður um áramótin 2024-2025 verður kalt og yfirleitt rólegt. Snemma á gamlársdag verður norðaustanátt sunnanlands með snjókomu og skafrenningi, en léttir til og lægir þegar líður á daginn. Á gamlárskvöld verður hægur vindur og léttskýjað sunnan- og vestanlands, en dálítil él norðaustanlands. Þar sem vindur verður hægur geta loftgæði orðið slæm, sérstaklega á þéttbýlum svæðum. Á nýársdag verður bjart að mestu með stöku éljum norðaustantil. Frost verður 5 til 18 stig, kaldast inn til landsins.
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út, en viðvaranastig gæti hækkað. Fólk er beðið um að fylgist vel með veðurspá og færð næstu daga.
Lesa meiraJarðskjálfti af stærð M3,2 mældist nærri Grjótárvatni að kvöldi 18. desember. Veðurstofunni bárust tilkynningar um að skjálftinn hefði fundist m.a. í uppsveitum Borgarfjarðar og á Akranesi. Jarðskjálftavirkni hefur reglulega mælst þarna síðan vorið 2021 en undanfarna mánuði hefur virknin farið vaxandi eins og meðfylgjandi gögn sýna. Frá því að virknin hófst þarna vorið 2021 er jarðskjálftinn sem mældist í fyrrakvöld sá stærsti, en haustið 2021 mældust tveir skjálftar um M3 að stærð. Fyrir 2021 mældist síðast markverð skjálftavirkni þarna árið 1992 en þá mældust tveir skjálftar um M3 að stærð, sá stærri M3,2, og nokkrir aðrir yfir M2,0. Það jarðskjálftayfirlit sem miðað er við nær aftur til ársins 1991 (SIL-kerfið).
Lesa meiraMyndmælingarteymi Náttúrufræðistofnunar og Landmælinga Íslands flugu yfir gosstöðvar þann 13. desember. Mæligögn úr fluginu sýna að hraunbreiðan sem að myndaðist í síðasta eldgosi frá 20. nóvember til 9. desember var 49,3 milljón m3 og 9,0 km2 að flatarmáli. Þykkasti hluti hraunbreiðunnar mældist við gíginn og varnargarða við Bláa lónið en meðalþykkt hraunbreiðunnar var 5,5 metrar.
Lesa meira