Ráðstefnur og fundir
Sumarþing Veðurfræðifélagsins 2013
Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið fimmtudaginn 13. júní. Þingið verður sett kl. 14 í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7. Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Dagskráin er eftirfarandi:
14:00 Þing sett
- 14:05 Elín Björk Jónasdóttir: Skýstrókar í Oklahóma.
- 14:20 Atli Norðmann Sigurðarson: Bayesískt tölfræðilíkan fyrir mánaðarlega úrkomu byggt á úrkomumælingum og úttaki úr veðurfræðilíkani.
- 14:35 Bolli Pálmason: Kynning á Harmonie veðurlíkani Veðurstofunnar.
- 14:50 Þórður Arason: Notkun eldinga í gosmekki til að ákvarða staðsetningu eldgoss.
15:05 Kaffihlé
- 15:30 Óli Páll Geirsson: Modelling annual maximum 24 hour precipitation in Iceland using block sampling and SPDE models.
- 15:45 Trausti Jónsson: Kvöldstöðvar – Hvað er það? Hverjar eru þær?
- 16:00 Haraldur Ólafsson: Litið yfir mæliherferðir undanfarinna ára.
Ágrip erinda má finna á vefsíðu félagsins.