Gasmengun
Gasmengun
Gasmengunarspá og skráningarform vegna gasmengunar
Hér fyrir neðan birtist textaspá veðurvaktar um gasdreifingu á landinu í dag og á morgun ásamt almennri veðurspá fyrir gosstöðvarnar. Kortin sýna þau svæði á landinu þar sem brennisteinsmengunar (SO2 ) í byggð fyrir næstu 48 tíma.
Fremsta kortið sýnir spá um styrk brennisteinstvíyldis við yfirborð, næstu þrjú kort sýna þau svæði þar sem mengunar geti orðið vart á næstu sex eða tuttugu og fjórum klukkustundum. Liturinn á þeim kortum gefur eingöngu til kynna svæði, ekki styrk.
Á þeim svæðum á landinu þar sem hætta er á brennisteinsmengun er ráðlagt að fylgjast vel með stöðu loftgæða og fylgja ráðleggingum Umhverfisstofnunar ef mengun er til staðar, sjá hlekki neðst á síðunni.
Mikilvæg skilaboð um gasmengun fyrir þá sem eru inni á hættusvæði vegna jarðhræringa:
- Gasmengun getur alltaf farið yfir hættumörk í nágrenni við eldstöðina. Mökkurinn leggst undan vindi.
- Í hægviðri (<5 m/s) getur dreifing gasmengunar verið ófyrirsjáanleg, þar sem hiti frá hraunbreiðu hefur áhrif á vindátt á svæðinu.
- Gasmengun berst einnig frá hraunbreiðunni vegna afgösunar.
- Ef einkenna verður vart er mikilvægt að koma sér burt frá aðstæðum.