Íslensk eldfjöll

Hvað veldur jarðskjálftum?

Ysta lag jarðarinnar, jarðskorpan, er samsett úr mörgum flekum sem hreyfast hver miðað við annan. Flekarnir ýmist nuddast saman á hliðunum (eins og til dæmis á Suðurlands- og Tjörnesbrotabeltunum), ýtast hvor frá öðrum, þannig að ný skorpa myndast (sbr. gosbeltin), eða þrýstast hver undir annan þannig að gömul skorpa bráðnar á ný (eins og við Indónesíu og vesturströnd Suður-Ameríku). Á öllum þessum flekasamskeytum byggist upp spenna sem leysist út við jarðskjálfta. Mismunandi gerðir jarðskjálfta einkenna mismunandi flekasamskeyti.

Brotahreyfing og landform

Á skilum þar sem flekarnir renna hvor fram hjá öðrum eru algengastir svokallaðir sniðgengisskjálftar og ef brotið nær yfirborði geta vegir, girðingar og annað hliðrast um jafnvel nokkra metra. Það fer meðal annars eftir þykkt jarðskorpunnar á flekaskilunum hversu mikil spenna getur byggst upp og þar með hversu stórir þessir skjálftar geta orðið. Stærstu skjáftarnir á Íslandi eru af þessari gerð, sbr. Suðurlandsskjálftarnir. Hér á landi verða skjálftar ekki stærri en um 7,2 á Richterskvarða, en í Kaliforníu geta þeir orðið þó nokkuð stærri.

Í gosbeltunum eru svonefndir siggengisskjálftar algengastir, þar sem hluti skorpunnar sígur við gliðnun, en sniðgengis- og þrýstigengisskjálftar mælast þar líka. Jarðskorpan er ung og til þess að gera heit í gosbeltunum og því er ekki hægt að byggja upp mikla spennu þar. Afleiðingin er sú að skjálftar þar verða aldrei mjög stórir, varla mikið stærri en um það bil 6 á Richterkvarða.

Á flekamótum þar sem einn fleki þrýstist undir annan verða svokallaðir þrýstigengisskjálftar. Allra stærstu skjálftar á jörðinni eru gjarnan af þessari gerð og þessir skjálftar eru best fallnir til að mynda flóðbylgjur eða tsunami.

Að lokum skal þess getið að skjálftar geta orðið inni á miðjum flekum vegna staðbundins þrýstings og að það mælast skjálftar sem eru sambland af þeim skjálftum sem hér hefur verið lýst.

 

Mynd 1. Brotahreyfingar og landform. A) gjá, B) siggengi, C) samgengi, D) sniðgengi, E) sigdalur og F) rishryggur. (Teikn. Þ.E. og G.H.I). Heimild: Þorleifur Einarsson, 1991. Myndun og mótun lands. Mál og menning, Reykjavík.

 





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica