Stærð snjóflóða
Í gagnasafni Veðurstofu Íslands er stærð snjóflóða skráð skv. flokkun sem er upprunnin í Kanada. Flokkunin hefur lítillega verið staðfærð hvað varðar lýsingu á áhrifum flóðs. Í flokkuninni er gefinn dæmigerður massi flóðs í hverjum flokki í tonnum. Auk þess er í erlendu flokkuninni að finna dæmigerða skriðlengd og ástreymisþrýsting flóða á hverju stærðarþrepi.
Flokkarnir sem um ræðir eru eftirfarandi: massi 10 tonn, 100 tonn, 1000 tonn, 10.000 tonn og 100.000 tonn en frekari lýsingu má sjá í töflunni:
Flokkur | lýsing | massi |
---|---|---|
1 | Spýja, sem varla getur grafið mann | 10 tonn |
2 | Snjóflóð sem getur grafið mann | 100 tonn |
3 | Snjóflóð sem getur grafið og eyðilagt fólksbíl, grafið vörubíl, skemmt hús eða eyðilagt minni byggingar | 1000 tonn |
4 | Snjóflóð sem getur eyðilagt nokkur hús | 10.000 tonn |
5 | Stærstu snjóflóð, geta eyðilagt mörg hús | 100.000 tonn |
Þessi stærðarflokkun snjóflóða er ekki alltaf auðveld vegna þess að áhrif flóða geta verið í ósamræmi við dæmigerðan massa þeirra eða rúmmál. Þarf þá að meta hvaða þáttur er látinn ráða flokkuninni.
Oft eru þunn, tiltölulega kraftlítil flóð flokkuð í stærðarflokka 1–2 þó svo að rúmmál þeirra sé meira en síðasti dálkur töflunnar gefur til kynna.