2011

Haf- og borgarístilkynningar fram til 1. desember 2011

Þessi vefsíða var virk til og með 30. nóvember 2011.

Hér er enn að finna í tímaröð tilkynningar frá skipum um borgarísjaka, ásamt upplýsingum um hafís frá Veðurstofu Íslands og úr ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar, frá árinu 2011.

Tilkynningar í tímaröð

27-09-2011 kl. 20:23  Skip

Tilkynnt nú í kvöld kl 2023, ísdreif og einn stakur jaki milli 65-57.8n 023-50.6w og 65-57.2n 023-48.5w, smærri brotin sjást illa eða ekki í radar.

27-09-2011 Skip

Fiskibátur tilkynnir kl 0641 um Borgarísjaka á stað 66°18,4N  023°43,7W, hreyfist ekki og sést vel í radar. 

Annar fiskibátur tilkynnir kl 0725 um ísjaka, líklega brot úr Borgarísjaka, á stað 65°59,44N 024°02,80W, rekur hratt til suðurs.

26-09-2011 Skip

Skip tilkynnir um borgarísjaka á 66°29,9N og 023°42,6V.  Sést vel í ratsjá.

23-09-2011 Skip

Skip tilkynnir um ísjaka : Staður : 66-37,0N 023-26,1W.  Ekki vitað hvort er á reki.

16-09-2011 Skip

Skip tilkynnir kl. 07:21 um borgarís á 66°47,44 N og 23°38,10 V.

13-09-2011 Skip

Landhelgisgæslunni barst tilkynning frá skipi um borgarís á eftirfarandi stöðum:

1.  67°06,5N     026°43,5V

2.  67°21,5N     026°21,8V

3.  67°18,7N     026°12,2V

4.  67°28,4N     026°40,5V

5.  67°29,2N     026°53,4V

6.  67°36,0N     026°35,7V

7.  67°33,6N     025°49,9V

10-09-2011 10:20  Flug

Flugvél tilkynnir um borgarísjaka á 66°43N 23°20W

09-09-2011 21:52  Flug

Flugvél tilkynnir um borgarísjaka á  65°48.58N 29°07.21W

08-09-2011 15:53  Skip

Skip statt á 66°38.1'N 023°36.2'V eða um 16.3 sml. NV af Straumnesi. Sér borgarísjaka ca 2-3 sml. norðan við sig. Segir hann vera mjög stóran. Er ekki með radar og getur því ekki séð nákvæmlega hversu langt frá hann er.

Kl 14:57 hafði Landhelgisgæslan samband við skip sem statt var á 66°49.57'N 023°55.31'W og sást borgarísjakinn mjög vel. Plottar hann jakann á radar á stað 66°47.645'N 023°37.5'V eða um 25 sjómílur norðvestur af Kögri. Radarinn reiknar jakann á 0,3 hnúta hraða í stefnuna 021°.
Aðspurður segir skipstjóri að vindur sé hægur af norðaustri. Telur þó að þarna eigi að vera suðurfall. Segir jakann búinn að vera þarna á svæðinu í nokkra daga. Dýpið þar m.v. sjókort er 85 faðmar. Telur hæðina geta verið 50 metra eða meira. Telur að jakinn sé að skralla í kantinum.

18-08-2011 13:20 Flug

Hafístilkynning barst úr flugi:
1. Ísjaki á stað 67°18N - 025°42V, smá ísbrot í kring, sjást ekki vel í radar
2. Tveir ísjakar á stað 67°15N - 025°08V, smá ísbrot í kring, sjást ekki vel í radar
3. Ísjaki á stað 66°40N - 026°19W, 75 sml NV af Kópanesi
4. Tveir ísjakar á stað 66°50N - 027°21V

14-08-2011 17:56 Skip

Fjórir ísjakar sjást á eftirfarandi stöðum:
1. 66°41.7N 26°12.1V
2. 66°50.0N 25°44.0V
3. 67°06.0N 25°19.0V
4. 67°09.0N 25°29.0V

14-08-2011 14:59 Skip

Sjáum borgarísjaka í 12 sml fjarlægð á stað 66°41.7N 26°12.1V.

13-08-2011 14:45 Skip

Hafís á 66°56.2N 24°31.6V, sést vel í radar. Um 20 x 60 metra jaki.

31-07-2011 08:45 Skip

Skip tilkynnir um stóran ísjaka á 66°48.6N - 023°03.7W. Staðsetning er u.þ.b. 22 sml N af Straumnesi. Stærðin er áætluð 300m2, lélegt skyggni á staðnum en vel sjáanlegur á radar.

28-07-2011 11:09 Skip

Skip tilkynnir:  Ísinn liggur vestast í 68°12'N-21°24'V og norður í 68°18'N-21°30'V. Þaðan liggur hann í norðaustur í 68°32'N-20°17'V og áfram NNA í 68°45'N-20°30'V (þar kemst maður ekki norðar). Ísinn liggur svo til austurs í 68°43'N-19°44'V og þaðan til suðurs í 68°18'N-19°44'V. Því næst í austur í 68°18'N-19°36'V og norðaustur í 68°39'N-19°05'V og austur í 68°40'N-18°52'V og norður í 69°14'N-18°40'V. Um klukkan 11 í morgun lá ísinn rétt norður af 69°17'N og 18°05'V. Áætlaður þéttleiki íssins er milli 3-5/10.

25-07-2011 09:25 Skip

Skip  tilkynnir:  Erum á leið út úr ísl. lögsögu eftir þrjá til fjóra tíma á leið á loðnumið - höfum þurft að sigla fyrir ís og tafist þessvegna.  Erum staddir á 68.19.4N  019.25.5V . Munum sigla fyrir ísröndina á stað 68.25N 019.58V.  Beðnir um að fara varlega í ísnum.

21-07-2011 02:17 Skip

Skip tilkynnir um borgarís á stað 66°40,23N  25°13,34V sést vel í radar.

18-07-2011 08:20 Skip

Skip statt á 67°26'N  23°25'V, ísrönd í NNA  frá skipinu.

17-07-2011 21:16 Skip

Skip á stað 67°00'N  24°13'V tilkynnir um  ísrönd á 66°58,5'N  24°12,5'V, liggur í ANA - VSV ,  nokkuð þéttur og nokkuð stórir flekar. Erum  komnir inn í ísinn í vök, erum að reyna að þræða okkur í gegn á leið á Dohrnbanka, virðist vera meira norðar. Ísinn sést ca 4-5 sml í radar.

03-05-211 kl. 19:18 Landhelgisgæslan

Landhelgisgæslan fór í hafískönnunarflug í dag og kl 1422 til 1450 var hafísinn kannaður á milli Íslands og Grænlands. Þéttur ís, um 9-10/10 er innan grænlenskrar lögsögu, en einungis smávægilegar dreifar innan íslenskrar lögsögu. Eins og sjá má af meðfylgjandi korti er ísinn næst landi um 82 sjml NV af Straumnesi, og 93 sjml NNV af Horni. Ekki var unnt að greina ísinn vel sökum þess hve lágskýjað ar, en útbreiðsla sést vel á SLAR myndum, sem og á eftirlitsratsjá.

 

03-05-211-Hafis

27-04-2011 kl. 17:07 Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir Grænlandssund í dag og sást hafís á ratsjármyndum.

Þéttur ís, um 8-10/10 er rétt innan Grænlenskrar lögsögu. Vesturendi ísrandarinnar er á 67°30´N-025°30´V. Miðja ísrandarinnar er á 68°09´N-022°35´V og austurendi hennar á 68°09´N-019°12´V.

Engir stórir jakar sjáanlegir á ratsjá utan ísrandarinnar.

03-04-2011 kl. 13:55 Tilkynning frá landi

Borgarísjaki á stað 65°42' N 32°07'V .

 

23-03-2011 kl. 19:30 Landhelgisgæslan

Í dag fór þyrla Landhelgisgæslunar í ísleiðangur  og var flogið norður með Vestfjörðum. Komið var að ísröndinni út af Látrabjargi og henni fylgt til norðausturs um eftirfarandi staði:

1.     65°50N 026°56V

2.     66°08N 026°26V

3.     66°16N 026°22V

4.     66°22N 025°35V

5.     66°31N 024°55V

6.     66°42N 024°26V

7.     67°03N 023°44V

8.     67°14N 023°29V

9.     67°33N 022°26V

Var ísinn 7-9/10 að þéttleika og sást greinileg nýmyndun inn á milli þar sem hann var gisnari. Ekki var að sjá stóra jaka eða borgarísjaka í jaðri ísins svo gera má ráð fyrir að hann sjáist ekki vel á ratsjá. Út frá ísröndinni sáust nokkrar ísdreifar og voru teknir staðir á þeim.

1.     65°51N 026°39V

2.     66°03N 026°18V

3.     66°10N 026°01V

4.     66°24N 025°18V

5.     66°58N 023°21V

6.     67°03N 023°24V

7.     67°33N 022°26V

Var ísröndin næst landi:

56 sml frá Látrabjargi.

38 sml frá Barða.

38 sml frá Kögri.

50 sml frá Hornbjargi.

Veður: V 10-23 hnútar léttskýjað og gott skyggni.

 

20-03-2011 kl. 19:56

Skip tilkynnir um hafís við og út af Víkurál. SV endi á ísspöng er á 66°01´00 N 026°44´00 V.  Spöngin liggur í NA og VNV frá þessum stað. Stórir jakar á dreif, varasamir fyrir skip á siglingu og sjást ílla í
ratsjá vegna slæms skyggnis.Veður á staðinum NA 15-18 m/s, frostþoka og snjóél á köflum.

18-03-2011 kl. 13:30 Veðurstofa Íslands

Gera má ráð fyrir því að hafís sé að finna um 20-25 sjómílur norður af Hælavíkurbjargi. Sennilegt er að ísröndin færist nær landi næstu sólarhringana vegna veðuraðstæðna.

04-01-2011 kl. 17:00 Landhelgisgæslan

Í dag var farið í eftirlitsflug um Vesturdjúp og Vestfjarðamið. Veður var hið besta á slóðum hafíssins og var eftirfarandi hafískönnun gerð milli kl.1700 til 1800:

Hafísinn er að þéttleika um 6-8/10 og nýmyndun íss greinileg um 2-3 sjml út frá meginísnum. Hafísinn var næst landi á eftirtöldum stöðum:

1. 80 sjml VNV af Bjargtöngum.

2. 46 sjml NV af Barða.

3. 40 sjml NV af Straumnesi.

4. 41 sjml N af Kögri.

Hafísröndin liggur um eftirtalin hnit (gráður og mínútur):

1. 65°43n-029°45v

2. 65°44n-028°58v

3. 66°10n-028°30v

4. 66°09n-028°05v

5. 65°52n 027°54v

6. 65°51n-027°36v

7. 65°56n-027°44v

8. 66°11n-026°42v

9. 66°16n-026°48v

10. 66°37n-025°14v

11. 66°46n-024°45v

12. 66°49n-024°49v

13. 66°56n-024°41v

14. 66°56n-024°17v

15. 67°12n-023°21v 1

16. 67°09n-022°48v

Enga borgarísjaka var að sjá nærri ísröndinni.

04012011



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica