Tilskipanir um vatn
Tilskipanir um vatn
Veðurstofa Íslands gegnir margþættu hlutverki vegna innleiðingar tilskipana Evrópusambandsins um vatn og flóð.
- Hönnun, samþætting og rekstur mælakerfa vegna vöktunar sem Vatnatilskipun kallar eftir.
- Greining vatnafræðilegra gagna og vatnafræðileg líkangerð af samþættum eigindum vatnsfalla og vatna.
- Hýsing gagna.
- Samþætting gagna og upplýsinga ólíkra aðila.
- Gagnaskil gagnvart Evrópusambandinu.
Til gamans má geta þess að á vefnum The Weather Channel eru loftmyndir af íslenskum vatnsföllum og samspili lands og vatns sem teknar eru og unnar af Andre Ermolaev 2011 til 2013.