Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit
Jarðskjálftavirkni viku 20

Skjálftavirkni 15. - 21. Maí, vika 20, 2023

Um 310 jarðskjálftar mældust á mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið. Það er nokkrir færra en í vikunni á undan, þegar um 350 mældust. Stærsti skjálfti vikunnar var 2,7 að stærð og varð hann 21. maí í Bárðarbúngu. Fimm skjálftar mældust í Heklu, sá stærsti 1,5 að stærð.


Nánar má skoða skjálftavirkni hér:  Skjálfta Lísa

Reykjanesskagi  

Á Reykjanesskaga var dreifð virkni um allan skagann, einkum við Krýsuvík og Reykjanes. Fjöldi skjálfta var rúmlega 80, sem er færri enn í vikunni á undan þegar 130 skjálftar mældust. Stærsti skjálftinn var 2,4 að stærð, þann 16. maí, við Sýrfell. Nokkrir skjálftar mælsdust við Bláfjöll. 

Úti fyrir Reykjanestá mældust nokkrir smáskjálftar. 

Suðurland  

Virknin á Suðurlandi var mjög svipuð þessa viku og vikuna á undan. Um 25 skjálftar voru staðsettir á Suðurlandsbrotabeltinu og um 5 á Hengilssvæðinu. Stærsti skjálftinn var 1,5 að stærð, þann 19. maí í Heklu. Fimm skjálftar mældust í Heklu í vikunni og fjórir um 5 km SW og NA af Heklu. 

Norðurland  

Á Norðurlandi mældust rúmlega 100 skjálftar. Stærsti skjálfti mældist rétt NA af Grímsey þann 20. maí og var 2,6 að stærð. Flestir skjálftar mældust á Grímseyjarbrotabeltinu, eða tæplega 60, einnig voru skjálftar á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu. Í Axarfirði mældust yfir 20 smáskjálftar. 

Minni virkni var við Kröflu en í vikunni á undan, aðeins tveir smáskjálftar í Kröflu. 

Miðhálendið  

Það var frekar róleg virkni í vikunni, rúmlega 80 skjálftar mældust á Hálendinu, flestir á Vatnajökli og við Öskju og Herðubreið.   

Aðeins mældust um 40 skjálftar undir Vatnajökli, sem eru færri en vikuna á undan, þegar 50 skjálftar mældust.  Í Grímsvötnum heldur áfram að róast, en aðeins sjö skjálftar voru staðsettir þar í þessari viku en þeir voru 12 í síðustu viku. Stærsti skjálfti þar var 1,8 að stærð, þann 21. maí. 

Þrir smáskjálftar mældust við vestari Skaftárketil. Nokkrir smáskjálftar mældust ofan við Skeiðarárjökul. 

Fimm skjálftar, allir undir 1,6 að stærð mældust á djúpa svæðinu, SSA af Bárðarbungu. Við Kverkfjöll mældust þrir skjálftar, sá stærsti 2,4 að stærð, þann 18. maí. 

Innan Bárðarbunguöskjunnar mældust yfir 10 skjálftar, þar af þrír yfir tveir að stærð, sá stærsti 2,7 að stærð. Þetta var líka stærsti skjálfti vikunnar. 

Um 20 skjálftar, sá stærsti 2,0 að stærð mældust í Öskju sem er minna en í vikunni á undan, þegar 30 mældust.  Við Herðubreið mældust tæplega 20 smáskjálftar. 

Á Langjökulssvæðinu mældust tveir skjálftar við Geitlandsjökul, sá stærsti 2,3 að stærð, þann 16. maí.

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæðið  

Í Mýrdalsjökli mældust aðeins þrir skjálftar sem er mikil fækkun miðað við í vikunni á undan þegar 12 skjálftar mældust. Skjálftarnir eru flestir innan Kötluöskjunnar, sá stærsti 2,3 að stærð, þann 18. maí kl. 09:24. 

Einn smáskjálfti mældist á Torfajökulssvæðinu en enginn skjálfti mældist í Eyjafjallajökli.

Skjálftalisti - Vika 20, 2023



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica