Jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í yfirliti sem birt er mánaðarlega á vefnum (frá september 2024). Náttúruvársérfræðingur skrifar yfirlitið sem birt er í annari viku hvers mánaðar. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Mánaðaryfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 8, 19. – 25. Febrúar 2024

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Tæplega 450 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í vikunni sem leið. Mest var virknin í kvikuganginum norðan Grindavíkur eða um 170 skjálftar, allir undir tveimur að stærð. Við Fagradalsfjall mældust um 130 skjálftar, flestir á um 6-8 km dýpi. Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu milli Keilis og austur fyrir Kleifarvatn, stærsti skjálftinn þar mældist 2,2 að stærð 20. febrúar norðan við Trölladyngju. Við Brennisteinsfjöll mældust um 20 skjálftar, allir undir tveimur að stærð. Einnig mældust 5 skjálftar í kringum Bláfjöll. Af þeim 450 skjálftum sem mældust hafa 380 þeirra verið yfirfarnir.
Um 13 skjálftar mældust úti á hrygg, stærstur þeirra mældist 2,4 24. febrúar og var staðsettur um 100 km suðvestur af Reykjanestá.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Á Hengilssvæðinu mældust ríflega 200 skjálftar. Af þeim voru um 190 staðsettir í og við Húsmúla, þar sem hefur staðið yfir lítil skjálftahrina frá 15. febrúar. Skjálftavirkni á Suðurlandsbrotabeltinu var með eðlilegu móti, 32 skjálftar, allir litlir og mjög dreifðir.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

3 skjálftar mældust í suðurhluta Langjökuls, einnig mældist sinn hvor skjálftinn annarsvegar norður af Skjaldbreiði við Klukkutinda og hinsvegar suður af Sandfelli við Sandvatn. Í og við Hofsjökul mældust þrír skjálftar. Við Grjótárvatn mældist einn skjálfti. Suðvestur af Tungnafellsjökli mældist einn skjálfti.

Austurgosbeltið

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði
Í Mýrdalsjökli var virkni svipuð og undanfarnar vikur, 15 skjálftar, stærsti 1,5 að stærð.
Sama má segja um Torfajökulssvæðið, 8 skjálftar, sá stærsti 1,5 að stærð.

Vatnajökull
Í Vatnajökli mældust rúmlega 40 skjálftar og var virknin mest í kringum Grímsvötn og Bárðarbungu. Í Bárðarbungu mældust 13 skjálftar, sá stærsti 3,2 að stærð 25. febrúar. Um 14 skjálftar voru í Grímsvötnum, flestir þeirra í Grímsfjalli þar sem stærsti skjálftinn mældist 2,8 að stærð. Við Skaftárkatla mældust um 8 skjálftar, og restin af virkninni var dreifð um norðvestur hluta Vatnajökuls.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Við Öskju mældust 12 skjálftar, flestir litlir en sá stærsti var 2,9 að stærð. Við Herðubreið mældust 18 skjálftar.

Krafla og Þeistareykir

25 skjálftar, flestir vestan við Bæjarfjall. Fjórir skjálftar við Kröflu og tveir í Búrfelli.



Tjörnesbrotabeltið

Tveir skjálftar mældust á Kolbeinseyjarhrygg. Tveir skjálftar mældust í Ytristráki á Flateyjarskaga.

Alls um 40 skjálftar mældust samanlagt á Grímseyjarbrotabeltinu og Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Þar af voru 10 skjálftar staðsettir austanvið Grímsey, 11 útaf Eyjafirði og 17 við Flatey á Skjálfanda.



Skjálftalisti viku 08




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica