Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 36, 2. september – 8. september 2024

Í 36. viku ársins mældust rúmlega 570 jarðskjálftar á mælaneti Veðurstofunnar og þar af hafa um 560 skjálftar verið yfirfarnir. Er þetta nokkuð færri skjálftar en í fyrri viku. Langflestir skjálftarnir voru á Reykjanesskaga og í smáskjálftahrinu við Skriðu austan Skjaldbreiðar og við Sandfell norðvestan hennar. Að öðru leyti var virknin nokkuð dreifð um landið. Stærsti skjálfti vikunnar var 5,0 að stærð í norðaustanverðri Bárðarbunguöskjunni þann 3. september. Nokkuð dró úr virkninni við Grjótárvatn en þar mældust einungis 2 skjálftar og níu skjálftar mældust í og við Heklu í vikunni.

Nánar er fjallað um jarðhræringar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega.

Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Á Reykjanesskaga mældust rúmlega 170 skjálftar þessa vikuna um helmingi færri en í fyrri viku en eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell lauk þann 6. september sl. Mest var virknin í og við kvikuganginn við Sundhnúksgígaröðina eins og í vikunni á undan, en talsverð virkni var einnig í Bláfjöllum í smáskjálftahrinu þann 3. september sl. Einnig var áfram nokkur virkni í Fagradalsfjalli og vestan Kleifarvatns. Á Reykjaneshrygg var mun líflegra en í fyrri viku en rúmlega 30 skjálftar mældust. Flestir við Reykjanestá og suðvestan Eldeyjar, sá stærsti mældis 2,5 að stærð þann 7. september sl.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Á Suðurlandsbrotabeltinu mældust tæplega 20 skjálftar á víð og dreif um svæðið, svipað og í fyrri viku. Níu skjálftar mældust í og við Heklu þar af fjórir í toppgígnum. Átta skjálftar mældust á Hengilsvæðinu, en í síðustu viku mældust um 20 skjálftar.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

Tæplega 100 skjálftar mældust í vesturgosbeltinu í vikunni en munar þar mestu um hrinu NA við Skjaldbreið annars vegar og í Sandfelli NV Skjaldbreiðar hins vegar. Stærstu skjálftarnir mældust 2,5 að stærð við Sandafell. Höfum séð hrinur þarna áður nú síðast í júlí 2023. Tveir skjálftar mældust við Grjótárvatn, einn í Geitlandsjökli og einn í Hofsjökli.

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði

Jarðskjálftavirkni hélt áfram að aukast í Mýrdalsjökli en 30 skjálftar mældust í vikunni þar, mun fleiri en í fyrri viku þegar um 10 skjálftar mældust. Mældist sá stærsti 2,6 að stærð og flestir dreifðir um öskjuna. Á Torfajökulsvæðinu var mun líflegra en í fyrri viku en þar mældust 9 skjálftar.

Vatnajökull

Í Vatnajökli var nokkuð minni virkni þessa vikuna, rúmlega 50 skjálftar mældust og rúmlega helmingur þeirra við Bárðarbungu. Í NA-hluta öskjunnar mældist einnig stærsti skjálfti vikunnar, M5,0 að stærð þann 3. september kl. 16:31 og er það stærsti skjálftinn þar síðan 21. apríl sl. Þrír skjálftar mældust í og við Grímsvötn og nokkrir skjálftar mældust við Þórðarhyrnu, allir undir 1,5 að stærð. Þrír skjálftar mældust í öskju Öræfajökuls.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Við Öskju mældust tæplega 20 skjálftar í vikunni sem leið, allir undir 1,5 að stærð. Rúmlega 30 skjálftar mældust í og við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Er þetta meiri heildarfjöldi skjálfta og í fyrri viku og munar þar mestu um að fleiri skjálftar mældust við Herðubreið nú en í fyrri viku.

Krafla og Þeistareykir

Nokkuð meiri virkni var á svæðinu í vikunni samanborið við fyrri viku og munar þar mestu um skjaĺfta við Bæjarfjall en þar mældust tæplega 10 skjálftar, þrír skjálftar mældust við Kröflu og enginn í Kelduhverfi.

Tjörnesbrotabeltið

Örlítið meiri virkni var á Tjörnesbrotabeltinu samanborið við fyrri viku en nú mældust rúmlega 50 skjálftar samanborið við tæplega 40 í fyrri viku. Virkni var nokkuð dreifð um beltið síðastliðna viku en nokkur virkni var rétt austan Flateyjar á Skjálfanda og austan Grímseyjar sem og við Gjögurtá. Allir voru þeir undir 2,5 að stærð. Í Öxarfirði mældust 7 skjálftar, allir undir 1 að stærð. Einn skjálfti mældist á Tröllaskaga.


Skjálftalisti viku 36




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica