Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 33, 12. ágúst – 18. ágúst 2024

Í 33. viku ársins mældust rúmlega 1430 jarðskjálftar á mælaneti Veðurstofunnar og þar af hafa um 990 skjálftar verið yfirfarnir. Langflestir skjálftarnir voru á Reykjanesskaga og yfir kvikuganginum við Sundhnúksgígaröðina. Að öðru leyti var virknin nokkuð dreifð um landið. Stærsti skjálfti vikunnar var 3,5 að stærð, 16. ágúst í Bárðarbungu og einnig var hrina austan Flateyjar á Skjálfanda í vikunni. Virknin við Grjótárvatn á Mýrum hélt líka áfram.

Nánar er fjallað um jarðhræringar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega.

Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Á Reykjanesskaga mældust rúmlega 900 skjálftar þessa vikuna. Mest var virknin í og við kvikuganginn við Sundhnúksgígaröðina eins og í vikunni á undan, en talsverð virkni var einnig við Reykjanestá, í Fagradalsfjalli og við Kleifarvatn. Á Reykjaneshrygg voru tæplega 140 skjálftar mældir, stæsti 3,1 að stærð.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Á Suðurlandsbrotabeltinu mældust rúmlega 30 skjálftar á víð og dreif um svæðið, talsvert færri en í síðustu viku þegar um 80 mældust. Tæplega 70 skjálftar mældust á Hengilsvæðinu, en í síðustu viku mældust um 50, munar um hrinu við Eiturhól norðan Nesjavallarvegar.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

Átta skjálftar mældust í Langjökli í vikunni sem leið, allir undir 2 að stærð og einn við Hofsjökul. Einnig mældist einn skjálfti norðan Langjökuls þann 12. ágúst. Rúmlega 30 skjálftar mældust við Grjótárvatn á Mýrum, sá stærsti 2,6 að stærð. Eru það örlítið færri skjálftar en í fyrri viku þegar um 40 skjálftar mældust.

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði

Tæplega 20 skjálftar mældust, allir undir þremur að stærð og flestir staðsettir austarlega í öskjunni. Örlítið færri en í fyrri viku. Á Torfajökulsvæðinu var nokkuð rólegt, um 10 skjálftar mældust þar.

Vatnajökull

Í Vatnajökli var nokkuð meiri virkni þessa vikuna, rúmlega 80 skjálftar mældust og var um helmingur þeirra við Bárðarbungu, tveir skjálftar yfir 3 að stærð urðu þar og sá stærri 3,5 þann 16. ágúst. Einnig mældust þrír skjálftar í Grímsvötnum og nokkur virkni var áfram við Þórðarhyrnu, svipað og í fyrir viku, en rúmlega 10 smáskjálftar mældust þar í vikunni.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Við Öskju mældust rúmlega 30 skjálftar í vikunni sem leið. Rúmlega 10 skjálftar mældust í og við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Er þetta svipaður heildarfjöldi skjálfta og í fyrri viku þó færri skjálftar hafi mælst við Herðubreið nú en í fyrri viku.

Krafla og Þeistareykir

Rólegt var á svæðinu í vikunni, 5 skjálftar mældust við Kröflu og 3 við Bæjarfjall og 5 í Kelduhverfi, allir um eða undir 1 að stærð. Er það mjög svipuð virkni og í fyrri viku.

Tjörnesbrotabeltið

Nokkuð meiri virkni var á Tjörnesbrotabeltinu samanborið við fyrri viku en nú mældust rúmlega 130 skjálftar samanborið við um 40 í fyrri viku. Virkni var nokkuð dreifð um beltið síðastliðna viku en mesta virknin var suðaustan við Flatey á Skjálfanda í hrinu þann 18. ágúst og mældist stærsti skjálftinn þar 2,5. Einnig var nokkur virkni austan Grímseyjar og við Gjögurtá og í Eyjafjarðarál. Í Öxarfirði mældust rúmlega 10 skjálftar, allir undir 2 að stærð.



Skjálftalisti viku 33




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica