Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 32, 5. - 11. ágúst 2024

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Á Reykjanesskaga mældust um 830 skjálftar þessa vikuna. Mest var virknin í og við kvikuganginn við Sundhnúksgígaröðina sem hefur aukist töluvert frá því í vikunni á undan. Rúmlega 470 skjálftar mældust sem er rúmlega helmingi fleiri en í síðustu viku. Talsverð virkni var einnig í Fagradalsfjalli og umhverfis Trölladyngju.

Á Reykjaneshrygg mældust tæplega 50 skjálftar mældir, sá stærsti mældist 2.4 að stærð.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Á Suðurlandsbrotabeltinu mældust um 135 skjálftar á víð og dreif um svæðið. Tæplega 40 skjálftar mældust á Hengilsvæðinu og um 40 sjálftar í Krossfjöllum, rétt við Raufarhólshelli.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

Nokkur skjálftavirkni var í og við Langjökul, þrír skjálftar mældust norður af Þórisdal, fjórir skjálftar í Hofsjökli. Smáskjálftahrina mældist við Grjótárvatn, alls mældust um 40 skjálftar þann 10.ágúst.

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði

í Mýrdalsjökli mældust rúmlega 25 sjálftar, þrír skjálftar mældust á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Á Torfajökulssævðinu mældist einn smáskjálfti.

Vatnajökull

Í Vatnajökli mældust rúmlega 65 skjálftar og voru þeir nokkuð dreifðir um jökulinn. Nokkrir skjálftar mældust á djúpasvæðinu, í Bárðarbungu suðvestur af Grímsvötnum.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Við Öskju mældust um 25 skjálftar í vikunni sem leið, flestir á austurbarmi öskjunnar. Einnig mældust 25 skjálftar mældust í og við Herðubreið og Herðubreiðartögl.

Krafla og Þeistareykir

Rólegt var á svæðinu í vikunni, þrír skjálftar mældust við Kröflu og þrír skjálftar umhverfis Reykjahlíð.

Tjörnesbrotabeltið

Virkni var nokkuð dreifð um beltið síðastliðna viku en rúmlega 40 skjálftar mældust á svæðinu í heild sinni. Þar af um 25 skjálftar á Grímseyjarbrotabeltinu og 15 í Eyjafjarðardjúpinu.

Skjálftalistiviku 32



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica