Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 16, 15. - 21. apríl 2024

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Ríflega 180 skjálftar mældust á Reykjanesskaganum í vikunni. Virknin var nokkuð dreifð um skagann en helst var það smáskjálftavirkni í Fagradalsfjalli, milli Stóra Skógfells og Grindavíkur og vestur af Kleifarvatni. Einnig má nefna skjálftavirkni sunnan við Bláfjöll.

Úti á Reykjaneshrygg mældust rúmlega 15 skjálftar, stærsti skjálftinn mældist 3 að stærð.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Rúmlega 10 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu, nokkuð dreift um svæðið. Einn skjálfti mældist á Hellisheiðinni en hann var 2.8 að stærð.

Þá mældust tæplega 25 skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu nokkuð jafndreift um svæðið.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

Einn skjálfti mældist í Hofsjökli og annar suður af Langjökli.

Austurgosbeltið

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði
Fimm skjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu og 9 í Mýrdalsjökli, stærsti skjálftinn var 1.9 að stærð.

Vatnajökull
Tæplega 70 skjálftar mældust í Vatnajökli þessa viku, svipað og vikuna á undan. Þar ber helst að nefna áframhaldandi smáskjálftavirkni í Bárðarbungu sem telur um 40 skjálfta sem og stærsta skjálftann í Bárðarbunga frá síðasta eldgosi árið 2015. Hann mældist 5.4 að stærð þann 21.apríl. Um 8 smáskjálftar mældust í Grímsvötnum í vikunni. Önnur virkni var frekar dreyfð um jökulinn.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Við Öskju mældust um 15 skjálftar, sem er svipaður fjöldi og í síðustu viku. Flestir þeirra eru austan megin við Öskjuvatn. Tæplega 30 skjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl.

Krafla og Þeistareykir

Um 10 skjálftar mældust nærri Kröflu.


Tjörnesbrotabeltið

Ríflega 60 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, þar af 35 á Grímseyjarbrotabeltinu og 25 á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu. Tveir skjálftar mældust út á Kolbeinseyjarhrygg.



Skjálftalistiviku 16



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica