Hafís í janúar 2003

Sigþrúður Ármannsdóttir 8.5.2006

Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.

Haf- og borgarístilkynningar í janúar 2003

Landhelgisgæslan fór einu sinni í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum í janúar, þ.8. Þá var ísbrúnin næst landi u.þ.b. 48 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Þéttleiki var víðasthvar 4-6/10 vestan 25°00'V en 7-9/10 austan við.

Tilkynnt var um tvo borgarísjaka í mánuðinum. Þ. 3. rúmlegar 20 sjómílur norvestur af Kögri og Þ 16. langt vestur af Vestfjörðum.

Norðaustanátt var ríkjandi í Grænlandssundi í janúar.

 


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica