Hafís í mars 2000

Sigþrúður Ármannsdóttir 9.5.2006

Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.

Hafístilkynningar í mars 2000

Landhelgisgæslan fór einu sinni í ískönnunarflug út af Vestfjörðum í mánuðinum þ. 22. Næst landi var ísbrúnin um það bil 56 sml. NV frá Barða. Ísinn á þeim slóðum var að þéttleika 7-9/10 en ís í myndun utan við jaðarinn.

Nokkrar ístilkynningar bárust frá skipum og var sá ís sem næstur var landi í mánuðinum, 40 sml. VNV af Straumnesi þ. 20.

Engar tilkynningar bárust um borgarís.

Norðaustanátt var ríkjandi í Grænlandssundi í mars.

 


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica