Minnkandi norðaustanátt og dregur úr ofankomu, 8-13 m/s og dálítil snjókoma í kvöld. Frost 1 til 6 stig. Austlæg átt 5-13 á morgun og fer að snjóa síðdegis. Gengur í norðaustan 13-20 annað kvöld.
Spá gerð: 18.01.2025 09:39. Gildir til: 20.01.2025 00:00.
Á mánudag:
Norðaustan 10-15 m/s, en 15-20 við austurströndina. Snjókoma norðaustan- og austanlands, él norðvestantil en að mestu þurrt annars staðar. Frost 0 til 4 stig, en um eða rétt yfir frostmarki við suðurströndina.
Á þriðjudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
Á miðvikudag:
Suðaustlæg átt 3-8, víða bjartviðri og kalt, en suðaustan 5-13, lítilsháttar skúrir eða él og hiti 0 til 4 stig við suður- og vesturströndina.
Á fimmtudag:
Austanátt og yfirleitt þurrt, en smáél syðst. Frost 2 til 12 stig, kaldast fyrir norðan, en frostlaust við suðurströndina.
Á föstudag:
Ákveðin austanátt og skýjað. Slydda eða snjókoma með köflum sunnan- og austanlands og síðar rigning, en lengst af þurrt norðan- og vestantil. Hlýnandi veður.
Spá gerð: 18.01.2025 08:35. Gildir til: 25.01.2025 12:00.