Október 2004

Guðrún Þ. Gísladóttir 9.1.2007

Tíð var nokkuð umhleypingasöm í október, m.a. gerði snörp norðanáhlaup bæði þ. 3 til 5. og 17. til 20. Í báðum tilvikum urðu skaðar á landi.

Meðalhiti í Reykjavík var 4,3 stig og er það 0,1 stigi neðan meðallags og kaldasti október frá 1998. Á Akureyri var meðalhitinn 3,3 stig og er það 0,3 stigum ofan meðallags.
Meðalhitinn í Akurnesi var 5,1 stig og -1,2 stig á Hveravöllum.

Úrkoma var í minna lagi um landið sunnanvert, í Reykjavík mældist hún 66 mm og eru það um þrír fjórðu hlutar meðalúrkomu. Á Akureyri mældist úrkoman 88 mm sem er 50 prósent umfram meðallag. Í Akurnesi mældist úrkoman 114 mm.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 110 og er það 27 stundum umfram meðallag. Á Akureyri var sólarlítið, þar mældust sólskinsstundirnar 36 og er það 16 stundum minna en í meðalári.



 


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica